Efling og SA ganga til at­kvæðagreiðslu um nýja miðlunar­til­lögu: „Erfið deila og reynt á þol­gæði deil­enda“

Ást­ráður Haralds­son settur ríkis­sátta­semjari í deilu Eflingar og Sam­taka hefur lagt fram nýja miðlunar­til­lögu í deilunni.

Þetta kom fram í máli Ást­ráðs á blaða­manna­fundi í Karp­húsinu fyrr í dag.

„Ég hef á­kveðið að leggja fram nýja miðlunar­til­lögu í deilu SA og Eflingar,“ sagði Ást­ráður og að hún kæmi í stað þeirra r sem lögð var fram 28. janúar.

Til­lagan fer til at­kvæða­greiðslu hjá SA og Eflingu og fer fram raf­ræn at­kvæða­greiðsla sem hefst á föstu­dag klukkan 12 og lýkur mið­viku­daginn 8. mars og eiga niður­stöður að liggja fyrir snemma eftir það.

Deilu­aðilar hafa sam­þykkt að fresta öllum verk­föllum og vinnu­stöðvunum þar til at­kvæða­greiðslu er lokið og niður­staða liggur fyrir.

„Þetta hefur verið erfið deila og reynt á þol­gæði deil­enda með ýmsum hætti,“ sagði Ást­ráður og þakkaði þeim fyrir til­raunir til að leysa deiluna. Hann sagði þau hafa gert með sér sam­komu­lag sem sé ekki hluti af til­lögunni en varðar sam­skipti þeirra og lauk þeim í gær. Hann sagði það for­sendur þess að honum væri mögu­legt að leggja fram þessa til­lögu.

Ást­ráður segir að miðlunar­til­lagan segir að hún sé svipuð þeirri sem lögð var fram í janúar og er gert ráð fyrir fullri aftur­virkni en eitt at­riði er að sögn Ást­ráðs öðru­vísi frá SGS samningi og það er breyting á starfs­heiti starfs­fólks á gisti­húsum og breyting á röðun á launa­flokki hvað þau varðar. En annars er sama sam­komu­lag og gert var ráð fyrir og í SGS samningi.

Spurður hvað hafi orðið til þess að deilu­aðilar hafi sæst á þessa til­lögu sagði Ást­ráður að lífið væri þannig að hlutir taki breytingum og þróist. Hann segir að það hafi skipt miklu máli að deilu­aðilar hafi náð sam­komu­lagi um ýmsa hluti í þeirra um­hverfi sem sé ekki hluti af miðlunar­til­lögunni eða verk­sviði sátta­semjara. Þau hafi náð sam­komu­lagi um það í gær.

Hann segist ekki vita um þeirra af­stöðu til til­lögunnar en að í lögum sé á­kvæði um kynningu á vegum sátta­semjara og að ekki sé gert ráð fyrir því að deilu­aðilar setji svo fram yfir­lýsingar í kjöl­farið um eitt­hvað annað.

„Þeim er sem sagt bannað að af­flytja til­löguna. Það er lög­bundið,“ sagði Ást­ráður og að hann hafi ekki gengið á þau um þeirra af­stöðu.