Efling heldur áfram að skjóta á Ármann – Elliði svarar

„Ármann þarf aldrei að fara í verkfall, en fær meira en tvær milljónir á mánuði. Starfsfólk Kópavogsbæjar er í verkfalli, en nú vill Ármann að þau komi samningslaus til vinnu til að þrífa vegna veirufaraldurs. Samninganefnd Ármanns hummar á meðan af sér viðræðurnar og lætur marga daga líða milli funda,“ segir í nýjustu tilkynningu Eflingar stéttarfélags. Dreifir stéttarfélagið þá mynd af Ármanni Kr. Ólafssyni, bæjarstjóra Kópavogs, og sakar hann um að nýta sér COVID-19 faraldurinn til að sleppa við kjaradeilu við Eflingarfólk.

Þessum skilaboðum deilir Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, á samfélagsmiðlum og segir: „Svona er staðan“.

Elliði Vignisson, sveitarstjóri í Ölfusi og flokksbróðir Ármanns, var spurður um útspil Eflingar í viðtali við Hafnarfréttir, en hann hefur sjálfur gengið í störf Eflingarfólks í sínu sveitarfélagi. Hann segist vart vita hvort hægt sé að taka fólki sem talar svona núna alvarlega. „Ég veit ekki hvort að Sólveig Anna gerir sér grein fyrir því að COVID veiran er ekki einhver PR brella. Þetta er dauðans alvara í orðanna fyllstu merkingu. Allt, eða réttara sagt næstum því allt, samfélagið stendur nú saman í baráttunni við þennan vágest. Sett eru neyðarlög, samkomubönn, öndunarvélum fjölgað og ferðabönn sett á svo eitthvað sé nefnt. Við erum óttaslegin og leggjumst á eitt í samhjálp sem er okkar eina vopn,“ segir Elliði.

„Á þeim tíma vogar Sólveig Anna sér að halda því fram að ég eða aðrir hjá sveitarfélögum séum að notfæra okkur ástandið. Ég er alinn upp af verkakonu í Eyjum og þegar ég sýndi af mér ónærgætni eða fávitaskap þá sagði hún „skammastu þín“. Það er ekki laust við að mér verði hugsað til þeirra orða.“