Efast um frásögn Reynis Bergmann af ágengri blaðakonu: „Hvernig er fólk í alvöru að gleypa við þessu?“

Heitar umræður hafa sprottið upp á samfélagsmiðlum eftir frásögn Reynis Bergmanns, vefjusölumanns og samfélagsmiðlastjörnu, af tilraun til þess að sverta mannorð hans. Reynir skrifaði pistil um málið á Facebook síðu sinni fyrr í vikunni þar sem hann rak málið og sýndi fram á skilaboð, máli sínu til stuðnings.

Þar átti blaðakona að hafa sent skilaboð á vinkonu Reynis til þess að ná upp úr henni ærumeiðandi sögum á hendur Reyni eftir nótt sem þau áttu saman fyrir nokkrum árum síðan. Reynir segir raunar að tilgangur skilaboðanna hafi verið sá að konan átti að lýsa nauðgun af hans hendi.

Pistill Reynis fékk mikla athygli og fór um víðan völl á netinu þar sem ýmsir sýndu honum stuðning.

Nú hefur málið hins vegar snúist í höndunum á honum, hið minnsta ef marka má hið íslenska Twitter samfélag.

Heiðrún nokkur birti færslu í gær þar eftir að hafa lagst í nokkra rannsóknarvinnu í kjölfar pistilsins. Þar tók hún eftir tveimur sérstaklega grunsamlegum atriðum sem henni fannst benda til þess að skilaboðin og þau gögn sem Reynir sýndi fram á væru í raun fölsuð.

„Tveir stórmerkilegir hlutir við þetta mál: - Blaðakona, Guðrún og Reynir nota öll bil á undan spurningamerki. -Blaðakona og ákveðin veitingamaður nota bæði málvilluna "kynfærislegt" yfir ofbeldi sem er kynferðislegt. Annars bara allir flottir,“ segir Heiðrún.

Færsla hennar hefur vakið gríðarlega athygli og greinilegt að margir hafi verið búnir að hugsa slíkt hið sama.

Þar segir meðal annars Ólöf Tara, einn meðlima Öfga: „Ánægð að einhver lagði í þetta, því það fyrsta sem ég hugsaði þegar ég sá þessa ræpu frétt er að hann hafi fake-að þessi samtöl.“

Ragga nokkur segir: „Ég er í alvöru búin að hugsa þetta í allan dag. Hann er að búa þetta til!“

Nokkrir Twitter notendur taka eftir fleiri grunsamlegum málfarsvillum hjá öllum þremur, það er blaðakonunni, Guðrúnu og Reyni.

Ólöf nokkur Gunnarsdóttir segir þar: „Guðrún og Reynir nota líka „seigja“ í stað segja.

Heiðrún nokkur bætir við athugasemd Ólafar: „Og nota bæði „eitthvertíman.““

Þá bætir Jafet nokkur Sigfinnsson um betur og segir: „og öll þrjú nota (óvarrt?) tvöfalt bil“ og sýnir fram á þrjú mismunandi dæmi þess með myndum því til staðfestingar.

Í ofanálag segir Linda nokkur: „Og á/à til skiptis...“

Elísabet nokkur svarar upphaflega innlegginu og segir: „Frekar augljóst, til að mynda hvað greinarmerkjasetningu varðar (eða skort þar á).“

Henni svarar enginn annar en Kjartan Valgarðsson, formaður framkvæmdarstjórnar Samfylkingarinnar: „Ef greinarmerkjasetningin væri það eina.“

Þá setur Þorbjörg Þorvaldsdóttir formaður Samtakanna 78 stórt spurningarmerki við frásögn Reynis.

Það gerir Karlmennsku-Þorsteinn líka, sparar ekki stóru orðin og segir: „Ég þrái að heyra í þessari „blaðakonu“. Plís, vertu til. Hitt er of sjúkt. Insane sjúkt.“

Þá segir Anna nokkur: „Hvernig er fólk í alvöru að gleypa við þessu?“