„Þegar á reynir samsvara 5.000 kr. ekki meira en ísbíltúr fyrir meðalfjölskyldu,“ sagði Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingmaður Viðreisnar, í umræðum um störf þingsins í gær.
Þar ræddi Þorbjörg, sem settist nýlega á þing eftir að Þorsteinn Víglundsson sagði af sér þingmennsku, stöðuna í efnahagsmálum og innan ferðaþjónustunnar. Gerði hún meðal annars 5.000 gjafabréf yfirvalda að umtalsefni, en til stendur að afhenda öllum Íslendingum, 18 ára og eldri, gjafabréfið í júnímánuði.
Góð en kraftlítil aðgerð
Þorbjörg sagði mikilvægt að stjórnvöld leggi til framsæknar aðgerðir með það að markmiði að lyfta eftirspurn innan lands. Fram undan sé íslenskt ferðasumar enda ljóst að ferðalög til útlanda verði lítil og sennilega engin. Í því felist ákveðið tækifæri innan lands í þeirri erfiðu stöðu sem er uppi.
„Ríkisstjórnin hefur kynnt þá aðgerð að senda öllum 18 og eldri 5.000 kr. ferðatékka. Það er góð aðgerð en hún er fremur kraftlítil. Ég held að hún nemi innan við 0,2% af heildarveltu greinarinnar og það er ef allir nýta þennan tékka. Ferðaþjónustan þarf mjög á innspýtingu að halda og þegar við blasir að landsmenn munu ekki ferðast til útlanda í sumar hefði mátt og átt að fara af mun meiri krafti í þá almennu aðgerð að hvetja til ferðalaga innan lands og gera fjölskyldunum það mögulegt.“
Ísbíltúr meðalfjölskyldu
Þorbjörg er þeirrar skoðunar að þessi aðgerð hefði átt að vera stærri og kraftmeiri því hún geti komið fleirum af stað og stutt þannig við ferðaþjónustuna, atvinnulífið, byggðirnar og fjölskyldur landsins. Þá geti hún stuðlað að því að skapa gott íslenskt ferðasumar fyrir fólkið í landinu.
„Hún gæti verið góð og almenn aðgerð fyrir okkur öll, þjóðina alla, og um leið tækifæri til að kynna íslenska ferðaþjónustu fyrir þjóðinni. Ég velti fyrir mér hvers vegna þessi góða hugmynd hafi verið útfærð á þennan máttlausa hátt. Þegar á reynir samsvara 5.000 krónur ekki meira en ísbíltúr fyrir meðalfjölskyldu.“