Ásmundur Einar Daðason, félags og barnamálaráðherra segir að ef framlengja þurfi tímaskeið hlutastarfaleiðarinnar, sem er einn meginþátta í aðgerðarpakka stjórnvalda vegna kórónúfaraldursins, þá verði það gert.
Samkvæmt frumvarpi um hlutastarfaleiðina, sem samþykkt var á Alþingi fyrir helgi, geta atvinnurekendur lækkað starfshlutfall launþega allt niður í 25% í komandi efnahagssamdrætti en launamaðurinn verið á atvinnuleysisbótum sem nemur skerðingunni. Þetta úrræði varir fram í júní, en ráðherra segir í samtali við Sigmund Erni í fréttaþættinum 21 í kvöld að allt verði gert til að lágmarka atvinnuleysi í landinu á næstu vikum og mánuðum, hlutastarfaleiðin sé þar sterkt vopn – og verði notað svo lengi sem þess þurfi með.
Hann fer yfir verkefni ráðuneytis síns í viðtalinu – og pólitíkina, sem sé að hans mati að taka breytingum í takt við tíðarandann, meðal annars íslenskri framleiðslu í vil, svo um munar.