Vilhjálmur Bjarnason þingmaður Sjálfstæðisflokksins hefur fengið sig fullsaddan af því þegar fólk segir „þú veist“ í ræðu og riti. Vilhjálmur skrifar stuttan pistil í Morgunblaðið þar sem hann gerir grein fyrir af hverju „þú veist“ skekur eyru hans. Segir Vilhjálmur að þetta hafi færst í vöxt í ræðu og samtali að sá sem hafi orðið segi „þú veist“. Vilhjálmur bætir við:
„Mér verður þá oftar en ekki spurn; hvurn fjandann? Til hvers að segja mér eitthvað sem ég veit?“
Þá segir Vilhjálmur að alþingmaður á nefndarfundi hafi í níu skipti sagt „þú veist“. Þá segir Vilhjálmur:
„Ráðherrar koma í sjónvarpsþætti og troða inn „þú veist“, sennilega vegna þess að hugsun er í ólagi, oftar en tölu verður á komið.
Og Rotary- og Lions-fundir eru svipuðu marki brenndir; ræðumenn segja „þú veist“ „Hvern fjandann veit ég?““
Þá segir Vilhjálmur að lokum:
„Sennilega er „þú veist „ til að tjá yfirburðaþekkingu á íslensku, ellegar er sagt „you know“. Ef til vill er ég gamall geðvondur karl, en ég á minn rétt þegar málmengun skekur eyru.“