„Ef það var einhver vafi þá settum við niður flaggstöng“

Uppátæki flugáhugamanna á Facebook hópnum Fróðleiksmolar um flug þar sem þeir settu niður flaggstöng innan girðingar á Reykjavíkurflugvelli hefur vakið mikla athygli.

Björgvin Sólberg Björgvinsson, starfsmaður Isavia, birtir færslu með mynd af nýrri flaggstöng á flugvellinum umdeilda. Lesendur vita eflaust vel að tilvist flugvallarins hefur verið nokkuð umdeild undanfarna áratuginn og virðist þjóðin skiptast í tvær fylkingar.

„Bara ef það var einhver vafi á því þá settum við niður flaggstöng innan girðingar á BIRK við Hringbraut til að minna á hvar flugvöllurinn er og verður,“ skrifar Björgvin Sólberg Björgvinsson, slökkviliðsmaður hjá Isavia. Hringbraut er ekki kunnugt um hvort uppátækið sé gert með fulltingi Isavia.

Þá bætir hann við: „Honk your horn fyrir flugvöllinn í Vatnsmýri!“ Mikil umræða hefur verið um flugvallarmál vegna eldgosa á Reykjanesi en bent hefur verið á að Keflavíkurflugvöll vanti nauðsynlega varaflugvöll. Hafa margir bent á Reykjavíkurflugvöll í þeim efnum, en aðrir talið það galið með tilliti til þéttingar byggðar í Reykjavík.