„Ef fleiri væru eins og þú væri heimurinn betri staður“

Guðmundur Felix Grétarsson fór í gær að hitta Dagnýju Magnúsdóttur til að sýna henni nýju hendurnar sínar. Dagný er ein þeirra sem styrki Guðmund Felix þegar hann var að safna fjármagni fyrir aðgerðina en árið 2011 bjó hún til um 400 skálar með handafari og seldi þær til styrktar Guðmundi Felix.

Hann birtir af þeim mynd saman á Facebook í gær og segir að hann hafi farið til hennar til að sýna henni handleggina og til að þakka henni fyrir.

Dagný sjálf skilur eftir athugasemd við færsluna og segir að draumur hafi ræst þegar þau hittust í gær.

„Þvílíkur heiður að fá þig og eiginkonu þína í heimsókn. Ég óska þér alls hins besta í framtíðinni. Ef fleiri væru eins og þú væri heimurinn betri staður,“ segir Dagný.

Verkefnið kallaði Dagný, árið 2011, Hendur í höfn en hér á vef Morgunblaðsins er rætt við Dagný, sem er glerlistakona, um skálarnar sem eru glerskálar með lítilli hönd á.