„Ef ég er ekki til staðar fyrir þá sem þurfa hjálp, hver verður þá til staðar fyrir mig þegar ég þarf hana?“

Nýtt fram­boð VG var kynnt á Hótel Héraði á Egils­stöðum í gær með ráð­herrum og þing­mönnum VG. Íbúar á Fljóts­dals­héraði, Seyðis­firði, Borgar­firði eystri og Djúpa­vogs­hreppi gera upp hug sinn um hvað kjósa skal í sveitar­stjórnar­kosningum 18. apríl þegar þessi sveitar­fé­lög verða sam­einuð. Í til­kynningu frá Vinstri grænum segir:

„VG býður fram lista undir merkjum hreyfingarinnar og af því erum við mjög stolt. Mikil­vægt er að sam­einingin takist vel og að íbúarnir skynji sveitar­fé­lagið strax sem eina heild. Við viljum samt að hvert byggðar­lag fyrir sig, haldi á­fram að njóta sérstöðu og eflast á grunni bættrar þjónustu í nýju sveitar­fé­lagi.“

Fram­boðs­listi VG er skipaður ein­stak­lingum vítt og breitt úr sveitar­fé­laginu.

Þá segir einnig í til­kynningunni:

„VG mun beita sér gegn á­formum um að spilla síðustu lítt snortnu víð­ernum á há­lendi Austur­lands og viljum við standa vörð um fram­tíð íbúa og náttúru á svæðinu.“

Jó­dís Skúla­dóttir leiðir listann en hún er lög­fræðingur og einnig for­maður stjórnar fé­lagsins Hin­segin Austur­land, sem var stofnað 28. desember síðast­liðinn. Fé­lagið gengur út á að búa til vett­vang fyrir hin­segin fólk, að­stand­endur þeirra og velunnara á Austur­landi og vinna að jöfnuði fyrir og stuðningi við hin­segin fólk. Í við­tali við Frétta­blaðið fyrr á árinu kom fram að Jó­dís er frá Egils­stöðum og þá er hún fjögurra barna móðir og starfar sem lög­fræðingur hjá stjórn­sýslu­stofnuninni Austur­brú.

„Ég hef unnið svo­lítið að mann­úðar­málum og líka mikið með börnum, en ég sér­hæfði mig í lofts­lags­málum og vann um tíma hjá Um­hverfis­stofnun. Ég brenn fyrir jafn­rétti og al­menn mann-réttindi og tók mjög virkan þátt í starf i Sam­takanna upp úr alda­mótum. Það er aðal­lega vegna þess að í ýmsum hlut­verkum sem ég hef verið í í lífinu, til dæmis sem kona, lesbía og ung móðir, hef ég fundið gríðar­lega fyrir ó­rétt­læti og ó­jafn­vægi í sam­fé­laginu. Bæði fé­lags­lega og ekki síst innan stjórn­sýslunnar. Þó að við stöndum vissu­lega framar­lega í þessum mál­efnum á Ís­landi eru ýmiss konar at­riði ekki í lagi og það eru aðrir hópar hin­segin fólks en hommar og lesbíur sem eru í mun lakari stöðu, t.d. trans­fólk og inter­sex fólk. Ég vil vinna að jafn­réttis­málum vegna þess að mín hugsun er þessi;

„Ef ég er ekki til staðar fyrir þá sem þurfa hjálp, hver verður þá til staðar fyrir mig þegar ég þarf hana?“

Eftir­taldir skipa listann:

  1. Jó­dís Skúla­dóttir, lög­fræðingur, Fljóts­dals­héraði
  2. Helgi Hlynur Ás­gríms­son – út­vegs­bóndi og hrepps­nefndar­maður, Borgar­firði eystri
  3. Þórunn Hrund Óla­dóttir, að­stoðar­skóla­stjóri og bæjar­full­trúi, Seyðis­firði
  4. Ania Czeczko, fé­lags­ráð­gjafi, Djúpa­vogs­hreppi
  5. Andrés Skúla­son, for­stöðu­maður, Djúpa­vogs­hreppi
  6. Svan­dís Egils­dóttir, skóla­stjóri, Seyðis­firði
  7. Pétur Heimis­son, heimilis­læknir, Fljóts­dals­héraði
  8. Krist­björg Mekkín Helga­dóttir, fram­halds­skóla­nemi, Fljóts­dals­héraði
  9. Ás­grímur Ingi Arn­gríms­son, kennari, Fljóts­dals­héraði
  10. Kristín Sigurðar­dóttir, hjúkrunar­fræðingur, Seyðis­firði
  11. Berg­sveinn Ás Haf­liða­son, nemi, Djúpa­vogs­hreppi
  12. Guð­rún Schmit, náttúru­fræðingur, Fljóts­dals­héraði
  13. Kristján Ketill Stefáns­son, fram­kvæmda­stjóri, Fljóts­dals­héraði
  14. Ruth Magnús­dóttir, skóla­stjóri, Fjóts­dals­héraði
  15. Svavar Pétur Ey­steins­son, hönnuður, Djúpa­vogs­hreppi
  16. Jóhanna Gísla­dóttir, grunn­skóla­kennari, Seyðis­firði
  17. Þór Vig­fús­son, mynd­listar­maður, Djúpa­vogs­hreppi
  18. Karen Erla Er­lings­dóttir, for­stöðu­maður, Fljóts­dals­héraði
  19. Skarp­héðinn G. Þóris­son, líf­fræðingur, Fljóts­dals­héraði

20. Andrés Hjalta­son, bóndi, Borgar­firði eystri

21. Þuríður Elísa Harðar­dóttir, forn­leifa­fræðingur, Djúpa­vogs­hreppi

22. Jón Ingi Sigur­björns­son, kennari, Fljóts­dals­héraði