Eddu sagt að klæða sig til að vera tekin alvarlega – „Það fauk í mig“

Edda Falak, Crossfit-stjarna, viðskiptafræðingur og áhrifavaldur, var í áhugaverðu spjalli í Sunnudagssögum á Rás 2 á dögunum. Edda hefur verið í fararbroddi íslenskra kvenna í þeirri MeToo-bylgju sem riðið hefur yfir að undanförnu og er hún fyrirmynd fyrir margar ungar konur.

Í viðtalinu kom Edda meðal annars inn á þau viðhorf sem hefur verið ríkjandi í garð kvenna, til dæmis það að þær verði að klæða sig á sómasamlegan hátt til að vera teknar alvarlega.

Hún nefndi dæmi um þetta. Eftir að hafa lokið námi í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands flutti hún til Kaupmannahafnar þar sem við tók framhaldsnám. Eftir nám fékk hún vinnu í fjármáladeild stórs fyrirtækis og á sama tíma byrjaði hún að birta myndir af sér á Instagram þar sem hún var fáklædd.

Edda, sem hefur alla tíð verið öflug íþróttakona, sagði meðal annars:

„Ég geri stelpulega hluti á Instagram, pósta myndum af mér á bikiníinu og geri alls konar fimleika og er fáklædd, á sama tíma og ég er í virtri stöðu í fjármálafyrirtæki.“

Skilaboðin sem Edda fékk voru þó þau að hún gæti ekki gert bæði; það er gegnt virðulegri stöðu í fjármálafyrirtæki á sama tíma og hún væri að birta af sér myndir, þar sem hún er fáklædd, á Instagram. Álit sumra hafi verið þannig að hún gæti ekki verið með mikilvæga kúnna á sama tíma og hún væri á bikiníinu á Instagram.

Þá upplifði hún að skoðanir hennar voru ekki virtar til jafns við skoðanir annarra. Var henni bent á að hún þyrfti að klæða sig öðruvísi til að vera tekin alvarlega. Eðli málsins samkvæmt var Edda ekki ánægð með þetta og viðurkennir hún að hafa fengið nóg.

„Það fauk í mig því mig langaði að gera bæði,“ segir Edda sem og bætir við að það viðhorf sem hún fékk hafi verið kolrangt:

„Þú getur gert bæði og þú ert ekki að lítillækka þig með því að birta mynd af þér á bikiníinu.“