Edda Falak, fjármálafræðingur, samfélagsmiðlastjarna og hlaðvarpsþáttastjórnandi, gerði ákveðin mistök þegar hún kaus utan kjörfundar í alþingiskosningunum sem fram fara í september.
Edda er mjög virk á Twitter og opnaði hún sig um mistök þar í gærkvöldi.
„Fattaði um leið og ég setti umslagið ofaní kassann að ég merkti óvart kjörseðilinn minn með nafni og kennitölu. Þetta er eitthvað það fáránlegasta sem ég hef gert í vikunni,“ segir Edda.
Edda þarf ekki að hafa stórar áhyggjur af þessu því hún getur farið aftur á kjörstað því nýjasta atkvæðið gildir. Fjölmargir benda Eddu á þetta.
„Þú mátt kjósa eins oft og þú vilt utan kjörfundar. Það er alltaf nýjasta atkvæðið sem gildir. Svo geturðu auðvitað kosið líka á kjörfundi, ef þú verður stödd í þínu kjördæmi þá. Þá gildir það atkvæði,“ segir einn af fylgjendum hennar.
Fattaði um leið og ég setti umslagið ofaní kassann að eg merkti óvart kjörseðilinn minn með nafni og kennitölu. þetta er eitthvað það fáránlegasta sem ég hef gert í vikunni
— Edda Falak (@eddafalak) August 26, 2021