Samfélagsmiðlastjarnan Edda Falak hefur gert gott mót með hlaðvarpsþætti sínum Eigin konur undanfarna mánuði. Ekki eru þó allir á eitt sáttir við fyrirkomulag Eddu en borga þarf fyrir ákveðna þætti sem hún sendir út frá sér. Flestir þættirnir eru hins vegar opnir og aðgengilegir öllum á flestum hlaðvarpsveitum sem og í mynd á Youtube.
Þrátt fyrir þetta virðist leika um sig einhver gremja meðal aðdáenda þáttanna sem vilja síður borga fyrir þætti Eddu – þrátt fyrir að fá lang flesta þeirra fría.
Þetta hófst allt með tísti Eddu: „Tók viðtal við Steinunni Ólínu þar sem við ræddum aðeins metoo, cancel culture og hvort eigi að aðgreina listina frá listamanninum. Þið eruð svo heppin að fá að heyra hana tala, því hún veit bara! see you next week.“
Þessu svarar Líney nokkur á Twitter: „á patreon þá? [innsk. blm. Patreon er síða sem heldur utan um greiðslur fyrir hlaðvarpsþætti]. áhugavert að við þurfum að borga til að fá aðgang að upplýsingum og fréttum varðandi mikilvæg málefni eins og metoo. og frá manneskju sem við erum vist svo heppin að geta heyrt tala! við erum svo heppin,“ segir Líney sem er greinilega alls ekki nógu sátt.
Þá segir hún enn fremur að það orki tvímælis að Edda segist vilja nota aðstöðu sína til að dreifa fræðsluefni til sem flestra, en virðist síðan ekki vera aðgengileg öllum nema gegn greiðslu.
Óhætt er að segja að færsla Eddu vekji hörð viðbrögð meðal aðdáenda og fylgjenda hennar og taka margir hverjir upp hanskann. Edda byrjar þó á því að gera það sjálf og segir: „ Þátturinn er ekki komin út og ég veit ekki betur en að ég sé með fjóra hlaðvarpsþætti í mánuði sem eru aðgengilegir öllum. Annars er kostnaðurinn í kringum 1000kr á mánuði fyrir fræðsluefni sem er dýrt að gera.“
Edda segir jafnframt: „Það er alltaf jafn áhugavert að fólk ætlist til til þess að maður gefi vinnuna sína. Fólk skrifar ekki bók, prentar út 30.000 eintök og gefur bara bókina. Fólk er að eyða peningunum sínum í verri hluti en “fræðsluefni.”Styrktar og patreon tekjur fara í aðgang að forritum, léni, búnaður, maður á fullum launum við það að klippa allt efni, aðstoð sérfræðinga, markaðsefni og fl. Þetta er það sem mánaðarlegir bakhjarlar og styrktaraðilar eru að borga fyrir!“
Hrafnhildur nokkur svarar Líney og segir: „Ótrúlegt en satt þá áttu ekki rétt á fríu fræðsluefni frá neinum. Ekki einu sinni grunnskólanámið þitt er frítt.“
Þá segir Hanna nokkur: „Afhverju ætti hún að gefa vinnuna sína? Þetta er umræða en ekki upplýsingar sem eru óaðgengilega annars staðar. Mér finnst frábært að fólk geti stutt við málstaðinn og platform til að halda umræðunni gangandi.“
Hún heldur áfram: „Til að hlusta á upplifanir fólks sem eru með sína eigin rödd en er hunsað af öðrum miðlum og samfélaginu almennt.“
Þá segir Dísa nokkur: „Ég meina það eru endlaust af uppl og fréttum af me too á netinu frítt. Ef þú hefur ekki áhuga á podcasti sem þarf að borga fyrir þá bara hlustaru á þau hundruðu sem eru frí. Það er ekki eins og þetta Podcast sé það mikilvægt að allir þurfa að heyra og horfa. Það er bara val fyrir þá sem eru áhugasamir. Það kostar tíma og vinnu í að gera Podcast og finnst ekkert skrýtið að Edda og margir aðrir rukki fyrir það.“
Líney svarar Dísu: „jaja sure en ef við erum svona heppin að fá að heyra þessa konu tala afh þurfum við þá að borga fyrir það?“
Dísa svarar: „Því það kostar að hlusta á Podcastið? Þú þarft ekkert að hlusta frekar en þú vilt.“
Líney svarar aftur: „pointið er að það er frekar fáránlegt að hafa upplýsingar sem eru eins mikilvægar og metoo aðgengileg til allra. sama hvort það séu mörg hundruð önnur á netinu þá getur eitt podcast haft mikil áhrif :) lítill hlutur gerir stórt.“
Þá svarar Dísa í enn eitt skiptið og segir: „Þú getur ekki ætlast til þess að fólk fræði þig frítt. Steinunn Ólína er bara venjuleg manneskja að spjalla um me too. Þetta er ekkert mikilvægara en allar þær upplýsingar sem eru fríar á netinu.“
Tók viðtal við @SteinunnOlina þar sem við ræddum aðeins metoo, cancel culture og hvort eigi að aðgreina listina frá listamanninum. Þið eruð svo heppin að fá að heyra hana tala, því hún veit bara! see you next week 🎙
— Edda Falak (@eddafalak) November 16, 2021