Edda og Alexandra ó­sáttar við mögu­legt fram­boð Brynjars: „Mjög skýr skila­boð“

Alexandra Briem, for­seti borgar­stjórnar og borgar­full­trúi Pírata, tjáði sig um orð­róm þess efnis að Brynjar Níels­son, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hygðist bjóða sig fram til for­mennsku í KSÍ. Hringbraut greindi frá því í kjölfar fréttar Fréttablaðsins og jós Alexandra úr skálum reiði sinnar á Face­book.

Er hún ekki ýkja sátt við mögu­legt fram­boð Brynjars og þykir það greini­lega ekki til þess fallið að auka traust til sam­bandsins eftir at­burði síðustu vikna og mánaða: „Ef KSÍ á­kveður að hætta alveg við að fara í nokkra einustu til­tekt í sínum málum, þá veit ég ekki um neina skýrari leið til að aug­lýsa það út á við,“ segir Alexandra.

Hún heldur á­fram og kveður skýrt að orði: „Það að setja Brynjar í þessa stöðu væru mjög skýr skila­boð um að hætt hafi verið við að fara í ein­hverjar breytingar á hugar­fari eða að­ferða­fræði.“

Edda Falak, fjár­mála­fræðingur og sam­fé­lags­rýnir, tjáði sig einnig um mögu­legt fram­boð Brynjars á Twitter. Þar deilir hún frétt þess efnis og segir ein­fald­lega: „hahahahahahahaha nei?“

Hún bætir við og í­trekar: „hahah bara nei, alveg alls ekki.“

Edda hefur farið mikinn í um­ræðum um ýmsar birtingar­myndir of­beldis síðan hún hóf að hasla sér völl í sam­fé­lags­um­ræðunni hér á landi. Þá hefur hlað­varp hennar, Eigin konur, notið mikilla vin­sælda og tekið á ýmsum sam­fé­lags­málum. Ljóst er að Eddu þykir mögu­legt fram­boð Brynjars ekki heilla­væn­legt.