Hlaðvarpsstjórnandinn Edda Falak lætur ekki vaða yfir sig og á Twitter-síðu sinni í gærkvöldi lét hún fjölmiðlamanninn Frosta Logason fá það óþvegið.
Tilefnið er frétt Vísis þar sem vísað var í tölvupóst sem Frosti sendi á stjórnarmenn SÁÁ í gær. Eins og fjallað hefur verið um er allt í háaloft innan samtakanna og ákvað Þóra Kristín Ásgeirsdóttir meðal annars að draga framboð sitt til formanns til baka í gær.
Þetta gerði hún eftir að Arnþór Jónsson, fyrrverandi formaður SÁÁ, sagðist hafa fengið veður af því að maður sem vændur var um vændiskaup væri Kári Stefánsson. Kári þvertók fyrir það í viðtali við Stundina í gærkvöldi eins og Hringbraut fjallaði um í morgun.
Bréfið sem Frosti sendi og Vísir vitnaði til var svona:
Sælir félagar
ég vil upplýsa ykkur aðeins um gang mála.
Þóra Kristín og Kári Stefánsson hafa ákveðið að draga sig alfarið úr stjórn samtakanna vegna þeirrar ofbeldishegðunar sem Arnþór Jónsson og félagar hafa verið að sýna af sér í dag eins og á liðnum árum.
Það skal tekið hér fram að Edda Falak hefur staðfest það við Arnþór að ekki sé um Kára Stefánsson að ræða í þessum orðrómi um vændiskaup sem hún var að fiska eftir á samfélagsmiðlum.
Eftir stendur að ítrekað ofbeldi Arnþórs og félaga heldur áfram að eyðileggja fyrir okkar ágætu samtökum og það er miður.
Ég vildi bara hafa ykkur upplýst um þetta.
mbk,
Frosti
Edda svaraði Frosta fullum hálsi á Twitter í gær og sagði:
„Orðróm um vændiskaup sem ég var að fiska eftir? Fáðu þér nú bara sæti Frosti minn og þegiðu. Það er ekki Arnþór sem hefur eyðilagt þessi handónýtu samtök ykkar.“
Edda sagði svo í annarri færslu þar sem hún deildi svörum Kára í Stundinni að hún hefði svarað þessum Arnþóri í hálfkæringi enda bundin trúnaði við þolanda. „Ég hef engan áhuga á að taka þátt í einhverri pólitík innan SÁÁ.“
Orðróm um vændiskaup sem ég var að fiska eftir?
— Edda Falak (@eddafalak) February 3, 2022
Fáðu þér nú bara sæti Frosti minn og þegiðu. Það er ekki Arnþór sem hefur eyðilagt þessi handónýtu samtök ykkar. pic.twitter.com/v9dQPJTNEU