Edda hjólaði í Play: „Er nokkur lifandi manneskja að vinna hjá þessu fyrirtæki?“ - Síðan sá hún að sér

Leikkonan ástsæla Edda Björgvinsdóttir virtist alls ekki sátt með flugfélagið Play í gærkvöldi þegar hún birti eftirfarandi Facebook-færslu, en þar tjáði hún sig um erfiðleika sína við að ná sambandi við flugfélagið.

„Hvernig í andsk... nær maður sambandi við einhvern starfsmann hjá flugfélaginu PLAY????? Ég er búin að senda e-mail, og líka sms skilaboð, skrifa þeim á messenger og senda skilaboð á Instagram - en fæ engin viðbrögð. Er ekki nokkur lifandi manneskja að vinna hjá þessu fyrirtæki?????? Ég vona allavega að starfsfólkið um borð í vélinni sé af holdi og blóði,“ skrifaði Edda.

Færsla Eddu birtist þegar klukkan var að ganga tíu, en um tíuleytið uppfærði hún færsluna með nýjum upplýsingum, en þá hafði starfsmaður fyrirtækisins sett sig í samband við hana.

„Messenger skilaboð frá yndislegri stúlku sem vinnur hjá PLAY. Hún brást skjótt við pirruðum pósti mínum og ætlar að tengja mig við rétta aðila strax í fyrramálið. Takk elsku besta!“

Aftur uppfærði Edda síðan færsluna sína, en þá hafði hún séð að sér og minntist því á leikrit sem hún lék einu sinni í, en það hét Fúlar á móti.

„Það hrúgast inn skilaboð frá elskulegu fólki hjá PLAY sem vill hjálpa mér og ég er farin að horfast í augu við eigin skapbresti og tengja allsvakalega við leikritið „Fúlar á móti“ sem við sýndum hjá Leikhúsi Akureyrar hér á árum áður, en þar segir:

„Ég veit að ég er orðin öldruð fúl á móti þegar ég er brjálæðislega þrasgjörn allan liðlangan daginn og oftast stokkbólgin í andliti af vonsku þannig að háræðarnar springa í tætlur í kringum nefið á meðan ég froðufelli af pirringi og frussa út úr mér svívirðingum yfir allt og alla og segi hverjum sem heyra vill að hoppa upp í rassgatið á sér!“

Nú held ég að ég drífi mig bara í háttinn, setji tennurnar í glas, hárkolluna á standinn og fari í hlýju ullarsokkana og kveiki á kvöldsögunni,“