Edda Falak veður í lög­­reglu­varð­­stjóra

Í gær sagði Aníta Rut Harðar­dóttir, varð­stjóri hjá Lög­reglunni á höfuð­borgar­svæðinu, í sam­tali við 24.is að það eigi alls ekki alltaf að trúa þol­endum: „Ég vil koma því á fram­færi að mér finnst að eigi aldrei að þurfa skil­yrðis­laust að trúa þeim sem stíga fram og kalla sig þol­endur. Ég stend alveg föst á því.“

Þessi um­mæli hennar hafa vakið hörð við­brögð. Þór­hildur Gyða Arnars­dóttir sagði í sam­tali við 24.is að um­mæli hennar væru sorg­leg. „Það er sorg­legt að sjá lög­reglu­konu gefa í skyn að ef þú ert full á djamminu áttu of­beldi skilið,“ sagði hún. „Vona inni­lega að hún sjái ekki um að taka skýrslur brota­þola í of­beldis­málum því það væri graf­alvar­legt miðað við við­horf hennar.“

Í gær blandaði hlað­varps­stjórnandinn Edda Falak sér í um­ræðuna í færslu á Twitter. Hún deilir þar skjá­skoti af færslu Anítu Rutar á Face­book þar sem varð­stjórinn gerði mál Ingólfs Þórarins­sonar, Ingó Veður­guðs, að um­tals­efni. „Ég vil ekki búa í þjóð­fé­lagi þar sem ein­hverjir öfga femin­istar geta hent hverju sem er fram í fjöl­miðlum, tekið hann af lífi og ekki einu sinni þurft að út­skýra hvað maðurinn á að hafa gert af sér“, skrifaði Aníta Rut.

„Spáið i þvi að kæra, fara í skýrslu­töku og Aníta Rut tekur á móti þér:“, skrifar Edda með skjá­skoti af Face­book-um­mælum Anítu Rutar, þar sem hún segir að hún segist vona að þær séu bara svona vit­lausar og hugsan­lega þurfi þær á að­stoð að halda.

„Úff, pældu í því, að vera sakaður um ein­hverja vit­leysu og svo byrjar Edda Falak að tvíta um að þú hafir ekki rétt til að bera hönd fyrir höfuð þér…“ skrifar lög­maðurinn Ómar R. Valdimars­son í svari við tísti Eddu.