Edda Falak varð vitni að fallegu augnabliki í Smáralind í gær

Edda Falak, fjármálafræðingur og hlaðvarpsþáttastjórnandi, varð vitni að fallegu augnabliki þegar hún átti leið um Smáralind í gær.

Edda greinir frá þessu á Twitter-síðu sinni og segir:

„Varð vitni að svo fallegu momenti í Smáralind áðan þegar sirka 15 ára strákur stóð upp fyrir vinkonu sinni þegar vinir hennar voru að kalla hana druslu í “gríni”. Hann sagði: „Dudes kommon, svo lame að drusluskamma”. Vona að þau byrji saman.“

Edda, sem hefur gert sig gildandi í umræðunni um karlmennsku undanfarin misseri, er svo spurð að því hvort virkilega þurfi að ýta undir að strákur og stelpa, sem eiga í heilbrigðu vinasambandi, þurfi endilega að byrja saman. Því svarar Edda svona:

„Góð ábending. Þau voru eitthvað að kyssast þarna seinna, kannski voru þau saman, kannski voru þau að deita…ég bara veit það ekki.. ég bara hélt með þeim.“