Edda Falak upplýsir meira um vændiskaupandann: Heldur þeim uppi gegn því að fá „heimsókn“

Stjórn SÁÁ, sem og þjóðin öll, bíður nú í ofvæni eftir að hlaðvarpsstjórnandinn Edda Falak upplýsi um hver sé meintur vændiskaupandi. Það sem hún hafði gefið upp áður, þegar hún óskaði eftir frekari upplýsingum um hann, var að hann væri „mjög þekktur maður í samfélaginu“, væri „virkur í umræðunni um covid“ og hafi talað „opinberlega um alvarleika fíknivanda“.

Það eru nokkrir menn sem liggja undir grun. Kári Stefánsson hefur sagt að hann sé „100% viss“ um að þetta eigi ekki við sig.

Edda gaf meira upp um viðkomandi á Twitter nú í hádeginu, hún segir:

„Auðvitað er það áhyggjuefni ef maður sem talar opinberlega um alvarleika fíknivanda sé síðan að nýta sér stöðu kvenna með fíknivanda og halda þeim uppi fjárhagslega gegn því að fá “heimsókn”?“

Hún segir einnig að henni hafi borist mörg skilaboð frá áhyggjufullum karlmönnum:

„Svo merkilegt hvað ég er að fá mörg skilaboð frá karlmönnum “ef þessi póstur er um mig að þá vil ég bara segja að hann er það ekki” my dude…“