Edda Falak spáir fyrir um við­brögð byrlarans

Margir eru uggandi yfir meintum byrlara – eða byrlurum – sem ganga lausir í ís­lensku skemmtana­lífi. Birgitta Líf Björns­dóttir, eig­andi Banka­stræti club, kveðst hafa séð byrlun með eigin augum en þrátt fyrir það sé erfitt að ná utan um far­aldurinn og ger­endurna.

Net­heimar loga í um­ræðum um byrlanir og ljóst er að mörgum hafi verið byrlað eða þekki til ein­hverra sem hefur verið byrlað. Gríðar­legt á­kall er um að byrlanir verði skil­greindar sem árás eða of­beldis­brot.

Á­hrifa­valdurinn og hlað­varps­stjarnan Edda Falak spáir fyrir um við­brögð byrlarans á Twitter. Hún segir að þau verði í nokkrum skrefum:

„Jæja ætli byrlarinn fari ekki að gefa út yfir­lýsingu, fái sér lög­fræðing, krefjist þess að fara í skýrslu­töku og skrifi síðan pistil um úti­lokunar­menningu og norna­veiðar,“ segir Edda.

Kristín nokkur svarar Eddu og segir: „Jújú og fer svo í grát­þrungið drama­við­tal við Mann­líf þar sem hann segist að­eins hafa gert mis­tök og það eigi ekki að eyði­leggja fram­tíð hans.“
Þá segir einn Twitter notandi: Svo skrifar ein­hver kall skoðanapistillinn „ég er byrlarinn.““