Margrét Friðriksdóttir, ritstjóri Fréttarinnar, krefst rúmlega 29 milljóna króna í bætur vegna meintrar ólöglegrar brottvísunar úr vél Icelandair í síðasta mánuði.
Baráttu og fjölmiðlakonunni Eddu Falak finnst þetta heldur grátbroslegt hjá kollega sínum þar sem Margrét leyfir sér reglulega að henda fram meiðandi fullyrðingum um sig og aðra á samfélagsmiðlum.
Margrét var á leiðinni til Rússlands í síðasta mánuði en lögregla var kölluð til eftir að henni var tilkynnt um að handfarangur hennar yrði að fara í farangursrýmið vegna plássleysis; en sjálf sagðist Margrét hafa verið ósátt, en henni var sömuleiðis tilkynnt að hún þyrfti að nota andlitsgrímu.
Eftir deilur Margrétar og starfsfólks var ákveðið að hún fengi ekki að fljúga með vélinni.
Edda blandaði sér í umræður um bótakröfu Margrétar og deildi skjáskoti af ummælum Margrétar um sig. „Að krefja Icelandir um 30 milljónir fyrir æru¬meiðingar, þjáningu og á¬falla¬streitu, og á sama tíma vera bara“ skrifar Edda.
Edda fær mikinn stuðning frá vinum sínum eftir ummælin og skrifar Ragga: „Hún er bara í alvörunni að segja að það sé í lagi að nauðga 15-17 ára því þá eru börn með fulla meðvitund? Hvernig er hægt að vera svona ógeðsleg!“
„Ég held hún hafi ekki verið með fulla meðvitund þegar hún skrifaði þetta,“ svarar Edda. Kleópatra skrifar síðan um Möggu: „Þessi kona er holdgervingur illskunnar. Þvílíkur viðbjóður!,“ segir hún
Að krefja Icelandir um 30 milljónir fyrir ærumeiðingar, þjáningu og áfallastreitu, og á sama tíma vera bara: pic.twitter.com/XsD7zVECGD
— Edda Falak (@eddafalak) October 16, 2022