Edda Falak, fjármálafræðingur, Crossfit-þjálfri og hlaðvarpsþáttastjórnandi, segist hafa látið rekja miður skemmtileg skilaboð sem beindust að leikkonunni Donnu Cruz á samfélagsmiðlum á dögunum.
Eins og Hringbraut greindi frá á fimmtudag ræddi Edda við Donnu í hlaðvarpsþætti sínum, Eigin konur, á dögunum þar sem umfjöllunarefnið var meðal annars fordómar, rasismi og kvenfyrirlitning.
DV sagði frá efni þáttarins og undir frétt miðilsins birtust vægast sagt ógeðslegar athugasemdir frá einstaklingi sem kemur ekki fram undir réttu nafni. Edda birti umræddar athugasemdir og sagðist hafa látið rekja skilaboðin. Segir Edda á Twitter-síðu sinni að viðkomandi hafi tvo kosti:
„Ég lét rekja þetta og þú getur beðist afsökunar eða vonað að ég rekist aldrei á þig.“
Ég lét rekja þetta og þú getur beðist afsökunar eða vonað að ég rekist aldrei á þig. pic.twitter.com/1D8DCFIJ1X
— Edda Falak (@eddafalak) June 28, 2021
Margir hafa hvatt Eddu til að birta nafn viðkomandi einstaklings opinberlega. „Afhverju að sitja á nafninu? Það á bara ekki að vera í lagi að koma fram undir fölsku nafni og svo þegar vitað hver einstaklingurinn er þá er þagað,“ segir til dæmis í einni athugasemd. Þá segir í annarri:
„Frábært! Opinbera og helst senda bæði fjölskyldu og vinnuveitendum (ef svo ólíklega skyldi vilja til að hann hafi logið sig einhversstaðar í vinnu).“