Edda Falak leitar að sjálfboðaliðum: „Þetta er ekki djók“

Edda Falak, fjármálafræðingur og hlaðvarpsþáttastjórnandi, er ekki þekkt fyrir að liggja á skoðunum sínum og vakti færsla hennar um einkaþjálfarann Egil Einarsson talsverða athygli í gær.

Hringbraut fjallaði um málið sem sneri að brandara Egils um holdafar Sverris Þórs Sverrissonar, Sveppa. Egill og Sverrir eru í sumarleyfi saman í Sviss og birti Egill myndband af því þegar hann spurði þjón á ónefndu veitingahúsi hvort það væri í lagi að „sá feiti“ væri með honum inni á staðnum. Egill hló svo dátt að brandaranum.

Grínið féll misvel í kramið hjá netverjum. Sumir bentu á að um góðlátlegt grín tveggja vina væri að ræða og ólíklegt væri að Sveppi myndi missa svefn yfir brandaranum. Edda sagðist með færslu sinni vera að benda á hvað fordómar og grín gagnvart feitu fólki væri látið viðgangast á meðan grín gagnvart öðrum jaðarhópum fengi ekki að viðgangast í þessu samhengi.

Óhætt er að segja að Twitter-síða Eddu hafi farið á hliðina eftir færsluna. Þar tókust á stuðningsmenn Egils annars vegar og þeir sem tóku undir með Eddu. Sagði Edda í færslu í gær að pósthólfið hennar væri troðfullt af litlum „mini-gillzurum með flónaklippingu,“ eins og hún orðaði það. „Allir fjúkandi reiðir að fá ekki að hlæja að feitu fólki. Squatta sennilega þyngra en allir þeir til samans en það er annað mál,“ bætti hún við en Edda er ein öflugasta Crossfit-kona landsins.

Edda hefur nú birt nýjar færslur á Twitter þar sem hún skorar á stuðningsmenn Egils að mæta til sín í viðtal. Hún heldur úti hlaðvarpsþættinum Eigin konur sem nýtur talsverðra vinsælda.

„Væri svo til í að fá tvo mini-gillzara í viðtal. Spurning hvort hægt sé að ræða málin (málefnalega) og leyfa þeim að útskýra þeirra hlið á málinu og hvers vegna þetta brennur svona fyrir þeim,“ sagði Edda og bætti við að hún tæki á móti umsóknum í gegnum skilaboðaskjóðu Twitter. „Þetta er ekki djók […] Tjáðu skoðanir þínar í vinsælasta podcasti landsins og útskýrðu afhverju feitabollu brandarar eru saklausir og skemmtilegir“ sagði hún síðan.