Edda Falak, stjórnandi hlaðvarpsþáttarins Eigin konur og blaðamaður á Heimildinni, hefur verið krafin um milljónir króna í skaðabætur vegna birtingar hljóðbrots í þættinum.
Smartlandið á mbl.is greinir frá þessu þar sem fram kemur að lögmaður konunnar hafi staðfest þetta.
Greint er frá því að héraðsdómur hafi tekið málið fyrir í gær og var þinghaldið í málinu lokað.
Greint var frá stefnunni um miðjan febrúar og kom fram í frétt Smartlandsins á þeim tíma að konan stefni vegna meints brots á friðhelgi einkalífsins.
Kona kom fram í viðtali við Eddu og lýsti samskiptum við foreldra sína. Spiluð var upptaka af samskiptum hennar og móður hennar og sagði móðirin að upptökurnar hefðu verið teknar án vitundar hennar og teknar úr samhengi.
Í frétt Smartlandsins kemur fram að konan krefjist þess að hljóðbúturinn verði fjarlægður úr þættinum og greiðslu bóta vegna birtingarinnar.