Edda Falak, fjármálafræðingur og hlaðvarpsþáttastjórnandi, hefur farið nokkuð mikinn að undanförnu í umræðunni um karlmennsku.
Hún birti færslu á Twitter-síðu sinni í gær sem vakið hefur nokkur viðbrögð, en í henni sagði hún:
„Þú getur verið nokkuð viss um að hann sé góður gaur ef hann er að fylgja “Karlmennskan” á Instagram.“
Þorsteinn V. Einarsson heldur umræddri Instagram-síðu úti og nýtur hún talsverðra vinsælda. Síðan er með rúmlega 20 þúsund fylgjendur en þar er ýmsum spurningum um karlmennskuna velt upp.
Hefur Þorsteinn vakið viðbrögð fyrir baráttu sína og gagnrýnt þær karlmennskuhugmyndir sem þykja ekki gagnlegar fyrir karlana né samfélagið. Þorsteinn hélt úti athyglisverðum sjónvarpsþáttum á Hringbraut undir sama nafni fyrr á árinu, en þættirnir eru allir aðgengilegir hér.
Fullyrðing Eddu virðist fá góðan hljómgrunn meðal fylgjenda hennar og er færslan komin með vel yfir 300 „læk“. Ein athugasemd snýr að einstaklingi sem fylgir umræddri Instagram-síðu, en hann er sagður hafa hótað þolanda bróður síns að ganga í skrokk á föður hennar fyrir að segja frá. Það sé því dálítið stór alhæfing að segja að maður geti verið nokkuð viss um að viðkomandi sé góður gaur.
Þá bendir einn á að hugsanlega skreyti menn sig með stolnum fjöðrum til að virðast vera eitt á meðan þeir eru eitthvað annað. Því geti vel leynst úlfar í sauðargæru meðal þeirra sem fylgja síðunni.
Tanja Ísfjörð, sem er meðlimur hópsins Öfga, endurbirtir Twitter-færslu frá Þorsteini fyrr í sumar sem vakti talsverða athygli. Í færslunni spurði hann:
„Hvað eiga Sölvi Tryggva, Björn Bragi, Ingó Veðurguð, Hafþór Július Björnsson, Reynir Bergmann, Sverrir Bergmann og Egill Gillz sameiginlegt? Þeir eru ekki að followa karlmennskan á Instagram“