Edda Falak kemur Hildi til varnar: „Lítur út eins og flokkspólítískt skítkast“

Fjölmiðlakonan Edda Falak kemur Hildi Björnsdóttur, oddvita Sjálfstæðisflokksins, í borgarstjórn til varnar á Twitter-síðu sinni.

Greint var frá því í vikunni að mæting Hildar á borgarstjórnarfundi að undanförnu væri heldur döpur en Vísir greindi frá því að hún hefði ekki mætt á fund síðan um miðjan febrúar.

Þetta vakti athygli margra og stigu nokkrir af mótherjum Hildar fram og gagnrýndu hana. Alexandra Briem, forseti borgarstjórnar og borgarfulltrúi Pírata, sagði til dæmis:

„Spurning hvort Hildur haldi að hún sé meira í kosningabaráttu en við hin. Það virðist ekkert vera að vefjast fyrir öðrum fulltrúum að mæta á svona flesta fundina sína, bæði í meirihluta og minnihluta.“

Þá ýjaði Sigurbjörg Erla Egilsdóttir, oddviti Pírata í Kópavogi, að því að Hildur væri að brjóta sveitarstjórnarlög um réttindi og skyldur sveitarstjórnarmanna.

Edda Falak kemur Hildi þó til varnar og segir:

„Þetta með að Hildur Björnsdóttir hafi ekki mætt á fundi lúkkar bara eins og eitthvað flokkpólitískt skítkast tbh...“

Hildi til varnar hefur mæting hennar á borgarstjórnarfundi á kjörtímabilinu verið ágæti, heilt yfir. DV greindi frá því í gær að Dagur B. Eggertsson borgarstjóri væri með bestu mætinguna en Hildur væri á pari við aðra oddvita í borgarstjórn.