Edda Falak, fjármálafræðingur og hlaðvarpsþáttastjórnandi, á það til að varpa sprengjum á Twitter. Um helgina gerði hún golfáhugamenn hér á landi gráhærða með færslu sinni þegar hún sagði:
„Golf er ekkert eðlilega leiðinlegt sport, vá!“
Edda birti svo myndband af sér þar sem hún var í golfhermi að slá bolta. Það getur tekið á þolinmæðina að spila þessu fallegu íþrótt, sérstaklega þegar illa gengur. Eins og við var að búast hrúguðust inn athugasemdirnar við færsluna.
„Er MJÖG oft ánægð með þín innlegg en núna hefur þú einfaldlega rangt fyrir þér,“ sagði til dæmis í einni athugasemd. „Segir fólk sem er lélegt í golfi...,“ sagði í annarri. Þá spurði einn: „Hvað næst? Er skák leiðinleg íþrótt?“
Golfíþróttin nýtur vaxandi vinsælda hér á landi enda frábær útivera og góð hreyfing. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Edda gerir sér að leik að kynda í mannskapnum á Twitter. Skemmst er að minnast færslu hennar á dögunum um hvernig ristað brauð á að vera.
Golf er ekkert eðlilega leiðinlegt sport, vá!
— Edda Falak (@eddafalak) November 20, 2021