Áhrifavaldurinn og hlaðvarpsstjarnan Edda Falak hefur fengið stuðning úr vægast sagt óvæntri átt. Áhrifavaldurinn og vefjukóngurinn Reynir Bergmann segir á Facebook að Edda eigi að hljóta nafnbótina „Kona ársins“:
„Edda Falak er kona ársins að mínu mati hún hefur barist mjög heiðarlega í sinni baráttu um athyglina aldrei skaðað neinn né sært á lífsleiðinni og hvað þá komið óheiðarlega fram…,“ segir Reynir. „Af hverju eru ekki allir eins og Edda?,“ spyr hann svo.
Reynir og Edda hafa eldað grátt silfur um nokkra hríð. Skemmst er að minnast þegar búinn var til gerviaðgangur á TikTok þar sem látið var líta út fyrir að Reynir væri að byrja með þátt á Stöð 2, Edda spurði þá: „Ertu að segja mér að Reynir Bergmann sé að byrja með þátt á Stöð 2?“ og uppskar hneykslun margra. Yfirmaður á Stöð 2 sagði svo ekki vera og kom svo í ljós að stiklan úr þættinum var ekki raunveruleg.
Reynir var spurður að því í þættinum sáluga Harmageddon hvort hann hataði Eddu Falak, sagði hann þá: „Ég hata þessa píu ekki neitt. Hún kom oft að borða á Vefjunni, yndisleg stelpa, mjög fín sko. Hún startaði þessu bara; förum aldrei aftur á Vefjuna.“