Edda Falak, áhrifavaldur, hlaðvarpsstjórnandi og Crossfit-þjálfari, gagnrýndi einkaþjálfarann Egil Einarsson á Twitter-síðu sinni í gærkvöldi.
Egill, oft kallaður Gillz, er í sumarleyfi með góðum vini sínum, Sverri Þór Sverrissyni, um þessar mundir en í gær birti Egill röð myndbanda á Instagram-síðu sinni þar sem sjá mátti þá félaga skemmta sér konunglega í góða veðrinu í Ascone í Sviss. Skelltu félagarnir sér meðal annars á snekkju og borðuðu góðan mat.
Egill er ekki þekktur fyrir að liggja á skoðunum sínum og þykir honum fátt skemmtilegra en að skjóta á holdafar félaga sinna sem eru ef til vill með nokkuð hærri fituprósentu en hann sjálfur. Í einu myndbandinu sést þegar Egill skýtur á Sveppa fyrir framan þjón á ónefndum veitingastað í gærkvöldi.
„Er allt í lagi að sá feiti sé hér,“ spurði Egill þjóninn og svaraði þjónninn því játandi á meðan hann hló vandræðalega. Egill spurði svo þjóninn hvort hann ætti að biðja hann um að yfirgefa staðinn en þjónninn sagði að það væri óþarfi. Á meðan hló Egill dátt.
Edda Falak gerir málið að umtalsefni á Twitter-síðu sinni og segir meðal annars:
„Settu einhvern annan jaðarhóp inn í þetta grín, “is it okei that the black one is here” það yrði allt brjálað. En af því að hann er að tala um feita að þá fær þetta að slide-a???“
Ekki eru allir á því að þessi samlíking Eddu eigi rétt á sér, það sé ekki það sama að líkja saman kynþáttum og holdafari. Um sé að ræða grín í góðra vina hópi og ólíklegt sé að Sveppi hafi grátið sig í svefn í gærkvöldi.
Edda svarar og segist vera að benda á að hvað fordómar og grín gagnvart feitu fólki er látið viðgangast á meðan fordómar og grín gagnvart öðrum jaðarhópum fengi ekki að viðgangast í þessu samhengi. Þá segir hún að áhyggjur hennar beinist ekki að Sveppa. Fleiri blanda sér í umræðuna og taka undir með Eddu. Meðal annars er bent á að mikið af ungu fólki fylgist með Agli á samfélagsmiðlum og hann sé vafalítið fyrirmynd í augum margra þeirra. Hér að neðan má sjá færslu Eddu.
Settu einhvern annan jaðarhóp inn í þetta grín, “is it okei that the black one is here” það yrði allt brjálað. En af því að hann er að tala um feita að þá fær þetta að slide-a??? pic.twitter.com/IuVXXW4srd
— Edda Falak (@eddafalak) August 8, 2021