Edda ekki sátt við Þóru: „Þú sást nú hvernig fór fyrir Aldísi Schram“

Áhrifavaldurinn og hlaðvarpsstjórnandinn Edda Falak er ekki par sátt við Þóru Arnórsdóttur, ritstjóra Kveiks. Þóra var gestur í hlaðvarpinu Karlmennskan þar sem hún ræddi viðtal sitt við Þóri Sæmundsson, sem hefur ekki fengið vinnu í fjögur ár eftir að upp komst um typpamyndasendingar hans. „Við höfum fengið þakkir að opna á erfiða umræðu sem þessa, einnig miklar skammir fyrir að hafa ekki tekið umræðuna lengra. Við tökum til okkar að það hafi ekki verið nægilega skýrt það sem við vorum að segja og er gagnrýnin að mörgu leyti réttmæt,“ sagði Þóra.

Hún sagði leiðinlegt að þátturinn hafi ekki komið því til skila sem ætlað var. „Viðmælandi verður að taka ábyrgð á sinni hegðan. Við getum ekki sagt að við tölum ekki við ósympatískt fólk,“ sagði Þóra. Líkt og í máli Þóris væri engin málsmeðferð og bætir hún við að það sé hluti af mannlegum þroska að fara út af beinu brautinni. „Gott og sterkt samfélag hjálpar þér aftur inn á hana og verðum við að horfast í augu við það að fullorðið fólk átti sig á afleiðingum gjörða sinna, en það sé ekki alltaf þannig.“

Edda segir á Twitter að hún hafi hlustað á þáttinn: „Eftir að hafa hlustað á þáttinn með Þóru langar mig til þess að minna á að það eiga ekki allir heima í umræðunni. Ofbeldismaður sem upplifir sig sem fórnarlamb á ekki heima í viðtali, hann á heima í heimilsfrið, þar sem hann getur fengið hjálp,“ segir hún.

„Þóra talar um Þóri sem mann á gráu svæði því hann hafi ekki verið kærður. Já Þóra, því konur sem kæra eru yfirleitt geðveikar, þú sást nú hvernig fór fyrir Aldísi Schram.“ Vísar hún þar í mál Jóns Baldvins Hannibalssonar, fyrrum ráðherra.

„Það er svo súrrealískt að mæta í viðtal og ranta um að gera samfélagið betra þegar þú ert nýbúin að taka meintan ofbeldismann í drottningarviðtal og fylla kommentakerfið af þolendaskömm og viðbjóð. Það var bara ekki þörf á því, við vorum komin lengra en það í umræðunni,“ segir Edda.

„Minni á: Ef þú ert ekki búin að axla ábyrgð, byðja þolendur þína afsökunar og leyfi til þess að mæta í viðtal og tala um það sem þú gerðir að þá átt þú ekki heima í umræðunni, bara punktur. Allt annað en narcissism og gaslýsing.“