Edda Björg­vins: Ó­þolandi Trumpismi á Ís­landi – „Það er árið 2020“

Leik­konan Edda Björg­vins­dóttir er búin að fá nóg af þeim sem komast upp með að gaspra um að einka­bíllinn eigi for­gang alls­staðar.

Edda, sem bú­sett er í mið­bænum, er tals­kona þess að gera göngu­götum hærra undir höfði og deildi hún við­tali Mann­lífs við Ólaf Örn Ólafs­son, veitinga­mann og rekstar­aðila í mið­bænum, sem birtist um helgina. Í við­talinu sagði Ólafur Örn:

„Fjöl­miðla­um­fjöllun um skipu­lags­breytingar í mið­bænum gefur oft til kynna að það séu allir rekstrar­aðilar í bænum sam­mála um að það sé allt glatað hérna í bænum. En það er ekkert svo­leiðis. Mið­bærinn hefur aldrei verið eins líf­legur og núna. Ég get alveg full­yrt það,“ sagði hann en Ólafur er einn eig­enda Vín­stúkunnar Tíu sopar.

Ólafur sagðist vera þeirrar skoðunar að nei­kvæð um­fjöllun um mið­bæinn væri að fæla fólk frá því að heim­sækja hann. „Hér er mikil líf og fjör og ég er orðinn þreyttur á að það sé verið að tala mitt upp­á­halds­svæði í borginni niður,“ sagði hann.

Edda er þakk­lát Ólafi fyrir að stíga fram og benda á hið aug­ljósa, eins og hún orðar það í færslu á Face­book-síðu sinni. „Mann­líf er fegurra og bissniss blómstrar núna í mið­bænum! Allar rann­sóknir ná­granna­landa okkar sýna að með göngu­götum færist líf í dauð svæði, verslun eykst og fólk safnast saman í gleði. Það er ó­þolandi "Trumpismi" að lítill hópur skuli komast upp með gas­pur um að einka­bíllinn eigi for­gang - alls­staðar! Það er árið 2020 núna og mengun einka­bílsins á ekki rétt á sér.“

Edda hefur áður tjáð sig um mið­borgina og er hún stað­föst í þeirri skoðun sinni að einka­bíllinn eigi ekki að njóta for­gangs. „Stærstur hluti íbúa á höfuð­­borgar­­svæðinu vill minnka mengandi bíla­um­­ferð og búa til fleiri göngu­­götur. Hversu langt er hægt að ganga í heimsku­­legu bulli? Reynsla um allan heim sýnir að göngu­­götur laða að fólk og efla verslun. Alls­staðar! Hér í mið­bænum okkar hefur ALDREI verið jafn blóm­­legt mann­líf og nú. Það er löngu liðin tíð að heimta for­­gang einka­bílsins,“ sagði hún í lok maí eins og Hring­braut fjallaði um.