Edda Björg­vins með fal­lega kveðju til Gísla Rúnars í til­efni dagsins: „Hann var stór­veldi bæði í lífinu og listinni“

Leik­konan og hand­rits­höfundurinn Edda Björg­vins­dóttir skrifar hjart­næma kveðju til Gísla Rúnars Jónas­sonar leikara, rit­höfund og þýðanda á Face­book í dag en Gisli hefði orðið sjö­tugur í dag.

„Lífs­­föru­nautur minn, besti vinur, ástin í lífi mínu, sálu­­fé­lagi og marg verð­­launaður fjöl­­skyldu­faðir Gísli Rúnar Jóns­­son, fæddist þennan dag fyrir 70 árum. Það er ekki hægt að lýsa þessum manni í fáum orðum en hann var stór­veldi bæði í lífinu og listinni,“ skrifar Edda.

„Elsku Gísli minn það verður fjöl­­skyldu­veisla í kvöld þér til heiðurs þar sem ást­vinir þínir munu gleðjast, hlæja, gráta og fagna lífinu saman. Þegar ég sit hér og skrifa þessi fá­tæk­­legu orð til þín, sakna ég þess svo að geta ekki beðið þig kíkja yfir textann og benda mér á hvað betur megi fara, eins og ég gat alltaf gert þegar ég var að setja ein­hvern texta á blað og var í til­­finninga­­legu upp­­­námi,“ bætir Edda við og deilir ein­stak­lega skemmti­legum myndum af sér og Gísla í gegnum tíðna.

Gísli rúnar lést 28. júlí 2020, 67 ára að aldri en hann hóf sinn feril sinn sem skemmti­kraftur í sjón­varpi með Júlíusi Brjáns­syni í Kaffi­brúsa­körlunum, 1972-73, og lék síðan í, leik­stýrði og skrifaði fjölda út­varps- og sjón­varps­þátta.

„Ég velti líka fyrir mér í dag, hver eigi að hringja í okkur öll til að og kanna hvort við séum ekki örugg­­lega í góðum gír. Þú sagðir svo oft við mig í kvöld-sím­­tölunum okkar „Ég var að tala við öll börnin okkar, hringdi í Evu og Björg­vin og náði svo í Margréti og m.a.s. svaraði Róbert símanum “ Síðasta sím­talið sem ég átti við þig var svo dýr­­mætt. Þú varst á leiðinni að leita þér hjálpar við þessum ó­­­sýni­­legu sjúk­­dómum sem fæstir skilja. Fús­­leiki þinn til að takast á við það sem hrjáði þig var ó­­­trú­­legur. Þú þráðir svo heitt að ná tökum á lífinu og gerðir bók­staf­­lega allt til að til að geta notið fjöl­­skyldunnar sem þú elskaðir meira en allt. Ég ríg­held í þá hugsun að þú sért núna með blöðrur og köku á bleiku skýji að fagna með öllum sem við elskum á himnum. Ég veit að þú kíkir svo að­eins á okkur í kvöld og allir fá knús,“ skrifar Edda að lokum.