„Getið þið hugsað ykkur ykkur heim án alls þessa?“ spyr Edda Björgvinsdóttir, ein ástsælasta leikkona þjóðarinnar, á Facebook-síðu sinni.
Edda deilir þar pistli sem Ágúst Ólafur Ágústsson, þingmaður Samfylkingarinnar, skrifaði fyrr á þessu ári þar sem hann kallaði eftir því að listamannalaun yrðu tífölduð.
„Við gleymum ekki þeim fáu áhrifavöldum sem átta sig á gildi listarinnar þegar heimurinn fer óblíðum höndum um mannfólkið og tekjuhrun er algjört. Hvað hefur hjálpað geðheilsu Íslendinga í þessum faraldri? Listamenn,“ segir Edda og bætir við:
„Við hefðum ekki viljað vera án þess að geta horft á kvikmyndir, hlustað á tónlist, lesið bækur og notið listamanna landsins í sjónvarpi. Getið þið hugsað ykkur ykkur heim án alls þessa? Það gleymist nefnilega að stór hluti listamanna landsins lepur dauðann úr skel og hefur virkilega þjáðst síðan heimsfaraldurinn rústaði lífi okkar.“
Í grein sinni sagði Ágúst Ólafur að það sé ekki síst á erfiðum tímum sem fólk áttar sig á gildi og mikilvægi listarinnar. Á þeim tíma sem greinin var skrifuð var búið að banna nær alla viðburði sem stétt listamanna reiðir sig á. Eins og flestum er kunnugt hefur það ástand varað svo mánuðum skiptir. „Listafólk stendur með okkur, stöndum nú með þeim,“ sagði hann meðal annars og kallaði eftir því að listamannalaunin myndu ná til tíu sinnum fleiri listamanna en nú er.