Edda Björgvins fagnar stórafmæli í dag: Þetta ætlar hún að gera í tilefni dagsins

Edda Björgvinsdóttir, ein vinsælasta leikkona Íslands undanfarna áratugi, er sjötug í dag. Þó að Edda sé komin á eftirlaunaaldur – samkvæmt fæðingarvottorðinu allavega – er hún með nóg á prjónunum.

„Það sem gerir þetta að svo miklum stemningsdegi er að ég er ekki bara að koma beint úr skólanum til að hoppa á rennsli í Þjóðleikhúsinu heldur er ég full tilhlökkunar að fara beint í að taka upp ótrúlega skemmtilega sjónvarpsseríu líka,“ segir Edda í viðtali við Fréttablaðið í dag í tilefni dagsins.

Þó að hún sé sjötug segir Edda að blaðamaður sé eiginlega að tala við tuttugu og átta ára gamla konu í blóma lífsins! Edda bendir á að hún tók diplómanám í jákvæðri sálfræði fyrir nokkrum árum og í dag sinnir hún sálgæslunámi til hliðar við 180% vinnu.

„Þá er nú ótalið mastersnám í menningarstjórnun og margt, margt fleira,“ segir hún og bætir við: „Þess vegna veit ég ekki hvað það er að vera deginum eldri en tuttugu og átta ára – ég bara veit ekki hvað það er!“

Þó að nóg sé að gera ætlar Edda að finna sér tíma til að halda upp á stórafmælið. Á föstudag verður frumsýndur sænski söngleikurinn Sem á himni og er undirbúningur því á lokastigi.

„Ég ætla að reyna að grípa þau börn sem ég næ í og fara með þau í kaffi en svo tek ég þau bara með í vinnuna! Þau neyðast sem sagt til að koma með mér á fyrsta rennsli sýningarinnar sem er með áhorfendum til að knúsa mig almennilega,“ segir Edda í Fréttablaðinu.

Síðar meir mun svo gefast svigrúm fyrir frekari herlegheit.

„Þá ætlum við að kíkja til útlanda og halda partí – helst mörg partí! Það er allt á döfinni en eins og í Covid þá er maður að halda upp á stórafmælin eða útskriftirnar næstu tvö þrjú árin.“