Edda Björg­vins: „Ég er brjáluð!“ – Segist VITA um öll bréfin

Edda Björg­vins­dóttir, ein ást­sælasta leik­kona þjóðarinnar, er mjög ó­sátt við Sjúkra­tryggingar Ís­lands eftir að greint var frá því að Hjúkrunar­heimilið Lundur á Hellu hefði neyðst til að taka 20 milljóna króna yfir­drátt vegna CO­VID-kostnaðar, launa­hækkana og van­reiknaðra dag­gjalda.

RÚV fjallaði um þetta mál á fimmtu­dag.

Málið stendur Eddu nokkuð nærri enda hefur Edda unnið á um­ræddu hjúkrunar­heimili í sjálf­boða­starfi. Faðir hennar, Björg­vin Magnús­dóttir flutti á heimilið ekki alls fyrir löngu og þá er dóttir hennar, Margrét ýrr Sigur­geirs­dóttir hjúkrunar­for­stjóri.

Edda deildi frétt RÚV á Face­book-síðu sinni á fimmtu­dag og sagði:

„Hvað í andsk.... á það að þýða að koma svona fram við okkar elsta og við­kvæmasta fólk!!!!??'??? Hvernig voga æðstu valda­menn/konur hjá Sjúkra­tryggingum Ís­lands að hundsa öll erindi frá þessum hjúkrunar­heimilum?? Það vill svo til að ég VEIT um öll bréfin og fyrir­spurnirnar frá þessu til­tekna hjúkrunar­heimili á Hellu - fyrir­spurnir um stöðu á leið­réttingu svika Sjúkra­trygginga Ís­lands, alveg frá því í janúar í fyrra . Erindum sem er enn ó­svarað. Í rúmt ár!“

Í frétt RÚV sagði Margrét Ýrr að hjúkrunar­heimilið væri að fá röng dag­gjöld vegna mis­taka í skráningu árin 2017 og 2018. Heimilið væri því langt undir í dag­gjöldum. Allt árið 2020 hefði verið beðið eftir svörum um leið­réttingu en ekkert borist.

Edda hélt á­fram:

„Það er sem sagt ekki látið svo lítið að svara fyrir­spurnum. Bara þögn. Og svo þótta­full vörn þegar loksins fjöl­miðlar upp­lýsa rudda­skap þessarar opin­beru stofnunar: "Við höfum ekki fengið öll gögn ... blablabla" Hvaða gögn vantar? frá hverjum? Er of­verk stjórn­enda Sjúkra­tryggina Ís­lands að svara þeim sem eru í for­svari fyrir hjúkrunar­heimilin?? Er það til of mikil mælst?“

Edda spurði loks hversu lengi ætti að pína hjúkrunar­heimili landsins og hversu mörgum starfs­mönnum ætti að neyða stjórn­endur til að segja upp. „Hve­nær er gamla fólkið okkar hrein­lega í hættu vegna þess að það er ekki hægt að greiða hjúkrunar­fólki laun? Ég er brjáluð!“

Edda skrifaði svo öllu yfir­vegaðri færslu í gær­morgun þar sem hún varpaði ljósi á stöðu föður síns.

„Ég á 97 ára gamlan föður sem verður 98 ára í haust og í Co­vid á­standinu þegar leik­húsið mitt lokaði skráði ég mig sem sjálf­boða­liða á hjúkrunar­heimilinu Lundi þar sem hann dvelur. Ein­angraði mig frá restinni af heiminum til að vera með honum og öllum hinum gleði­gjöfunum á staðnum. Upp­lifunin var ein­stök. Kær­leiks­u­mönnun á heims­mæli­kvarða frá yfir­burða starfs­fólki. Ég veit að þið eigið mörg að­stand­endur sem njóta svipaðrar um­önnunar, þ.e. þurfa sökum aldurs og/eða sjúk­dóma að dvelja á hjúkrunar­heimilum.“

Edda segir að okkar öldruðu höfðingjar eigi skilið allt hið besta og „AÐEINS“ það allra besta. Ef greiðslur eru skertar sé í rauninni verið að þvinga stjórn­endur til að segja upp starfs­fólki.

„Öðru­vísi er ekki hægt að spara. Ég veit hvað það þýðir að þurfa að segja upp fólki vegna þess að það kreppir svo skóinn fjár­hags­lega að úr blæðir. Það er ömur­legt. Hræði­legt! Það þýðir ein­fald­lega að dug­legt fólk missir lífs­viður­væri sitt og starfs­fólkið sem eftir er þarf að bæta á sig vinnu. Á endanum getur það ekki meir. Hvað finnst því fólki sem hefur völdin á­sættan­legt að hrekja marga stjórn­endur og heil­brigðis­starfs­menn frá völdum með því að svelta reksturinn þannig að fólk hrein­lega gefst upp? Á tylli­dögum montum við okkur af frá­bæru heil­brigðis­kerfi - ég mæli með að ein­staka stofnanir fái ekki að rústa því sem við höfum byggt upp.“