Ebbu Guðnýju brugðið: „Þá gerðist það sem ég hef oft hugsað um í gegnum árin“

Ebba Guðný Guðmundsdóttir, kennari, heilsufyrirlesari og leik- og sjónvarpskona svo eitthvað sé nefnt, vaknaði upp við vondan draum fyrir skemmstu.

Ebba Guðný greinir frá þessu í bakþönkum Fréttablaðsins í dag og bendir á að hún haldi oft fyrirlestra og námskeið.

„Ég er alltaf stressuð að klikka á því að mæta í mína eigin fyrirlestra,“ segir hún og bendir á að þegar maður vinnur hjá sjálfum sér og er út og suður alla daga aukist hættan á því að eitthvað fari forgörðum í skipulagningunni.

„Mig langar vera í góðu jafnvægi og ekki stressuð. Ég er að reyna að treysta flæðinu í heiminum, að allt sé eins og það á að vera. Það er mjög erfitt. En það er samt svo ótrúlegt að yfirleitt einhvern veginn bjargast alltaf allt. Og ég hugsa oft eftir á: „ég hefði getað haft minni áhyggjur af þessu“.“

Ebba segir að þegar hún er í mikilli streitu sé hún alltaf að skoða símann sinn, logandi hrædd um að hún sé að gleyma einhverju.

„Það hefur verið mikið að gera undanfarið en ég náð að halda streitu í skefjum. Mjög ánægð með mig. En þá gerðist það sem ég hef oft hugsað um í gegnum árin (og vonað að gerðist ekki). Ég steingleymdi fyrirlestri. Ég var salíróleg að snuddast eitthvað þennan daginn,“ segir hún og bætir við að hún hafi verið búin að ákveða að hún ætti frí þennan daginn. Fór hún að hreyfa sig, þvo hárið og dúllast.

„Fer svo af rælni í tölvuna og sé að ég á að vera mætt til að halda tölu. Það kom á mig mikið fát, ég var ómáluð með blautt hár á nærbuxunum. Ég leit á símann og sá ósvöruð símtöl. Ég hringdi strax óðamála í þá indælu og góðu konu sem hafði ráðið mig. Hún var alveg einstaklega ljúf við mig. Ég þakka henni ástsamlega fyrir.“