Ebba segir erfitt að finna innri sátt og rifjar upp gömul ráð: „Þetta sagði víst lang­amma mín alltaf“

Ebba Guð­ný Guð­munds­dóttir, heilsu­kokkur og rit­höfundur, skrifar á­huga­verðan pistill í Frétta­blaðið í dag.

„Ég keypti mér einu sinni nokkrar hug­leiðslur sem ég hlustaði mikið á. Ein þeirra fjallaði um bónda sem lenti í alls konar veseni. Fólk í kringum hann kepptist við að segja honum að þetta og hitt sem gerðist væri ýmist alveg frá­bært eða mjög hræði­legt. En hann sagði alltaf bara ró­legur: „Við skulum sjá hvernig þessu fram vindur.“ Og svo kom á daginn að ýmis­legt sem fólk hélt að væri hræði­legt, reyndist frá­bært og öfugt. Þannig gekk þetta í hringi á meðan hann var alltaf ró­legur bara, sama á hverju gekk,“ skrifar Ebba.

„Maður veit ekki alltaf hvað er best fyrir mann.“ Þetta sagði víst lang­amma mín alltaf. Því er mun auð­veldara og jafn­vel heil­brigðara fyrir mann að reyna að treysta því að allt sé eins og það eigi að vera og reyna að trúa því að það komi eitt­hvað gott út úr þeim hindrunum eða upp­á­komum sem á vegi manns verða. Að það sé ein­hver til­gangur með þeim svo maður hvíli betur í sátt innan í sér, þegar lífið er að gerast allt í kringum mann. Mjög oft þvert á þau plön sem maður hafði gert,“ heldur Ebba á­fram.

Hún segir þetta er auð­vitað mjög erfitt og krefst bæði æðru­leysis og hug­rekkis en það er líka mjög lýjandi and­lega að reyna að stjórna öllu og öllum daginn út og inn.

„Eða vera stöðugt að streitast á móti. Það getur skapað mikla tog­streitu, innri ó­frið, á­hyggjur og átök.

Ég er ekki búin að ná tökum á þessu en held á­fram að reyna. Það er á­kveðið frelsi fólgið í því að leggja stundum árar í bát, leggjast jafn­vel út af og leyfa sér að fljóta og njóta út­sýnisins án þess að dæma eða hugsa stöðugt tíu leiki fram í tímann,“ skrifar Ebba að lokum.