Ebba Margrét með ákall eftir að augu hennar opnuðust á laugardagskvöldið

„Nú sé ég starf mitt og köllun skýrar,“ segir Ebba Margrét Magnúsdóttir, fæðinga- og kvensjúkdómalæknir í aðsendri grein sem birtist á vef Vísis í morgun.

Ebba segir þar frá danssýningu sem hún fór á á laugardagskvöldið með dóttur sinni, en sýningin sem um ræðir heitir Hringrás og er sýnd í Borgarleikhúsinu.

„Þar er um einleiks verk danshöfundar að ræða og mögnuð túlkun hennar á hringrás mannsins í þessum heimi. Allt frá hreyfingum fósturs í móðurkviði, sárar hríðar við fæðingu barns til bókstaflega flæðandi móðurmjólkur úr brjóstum nýbakaðrar móður. Hið ómálga barn sem dansar svo með móður sinni og þroskast og dafnar, en er háð henni á allan hátt til að eiga von um bjarta framtíð. Þar er það ást og umhyggja foreldra og þeirra bakland sem leggur grunninn að því sem koma skal,“ segir Ebba sem bendir réttilega á að maðurinn sé í raun mun háðari foreldrum sínum fyrstu árin en aðrar dýrategundir á okkar plánetu.

„Einstakt hvað listræn túlkun á jafn eðlilegum hlut og meðganga, fæðing og uppeldi getur opnað augu manns sem telur sig vera sérfræðing í fæðingarfræði og nokkuð þokkaleg móðir, amma og uppalandi getur gert. Listir lita tilveru okkar mun meira en við áttum okkur á,“ segir Ebba Margrét sem spyr hvort við getum öll reynt að sjá aðeins skýrar.

„Hvernig væri að ráðamenn okkar og þeir sem stjórna þessu landi færu að sjá starf sitt og köllun skýrar ? Nú þegar covid er ekki lengur að hefta okkur erum við skömmuð fyrir að hreyfa okkur og það er neyslu okkar að kenna að verðbólgan er á beinni línu upp á við. Bankarnir skila stjarnfræðilegum hagnaði, tölum sem almenningur skilur ekki á meðan þeir rukka fyrir hvert viðvik og jafnvel símtal. Peningar verða ekki til í bönkum er það? Er ekki sá hagnaður kominn til vegna skulda almennings?“

Ebba Margrét segir að íslenskt samfélag hafi breyst hratt á undanförnum árum og nú sé komin meiri stéttaskipting en áður.

„Munur milli þeirra sem hafa of mikið og hinna sem berjast í bökkum hefur aldrei verið eins og nú. Hingað hefur flutt fólk erlendis frá, nýbúar sem hafa íslensku sem annað tungumál og vinna mikilvæg störf sem eru ekki alltaf vel metin og launin lág. Fólk sem getur ekki framfleytt sér á lægstu laununum því þau einfaldlega duga ekki til að borga leigu, lán, nauðsynjar og kaupa í matinn. Hvað þá að veita börnum sínum tómstundir, föt eða að fara á sýningar eins og við mæðgur fórum á laugardaginn. Hvernig má það vera að í upphafi árs 2023 þegar lægðir ganga yfir landið á færibandi og veðurviðvaranir í öllum regnbogans litum dynja á okkur að við sjáum ekki skýrar.“

Ebba Margrét segist í pistli sínum biðja þess að ráðamenn og viðsemjendur Eflingar fari að sjá aðeins skýrar og og gangi til samninga við þau án tafar. Hún hrósar Sólveigu Önnu Jónsdóttur, formanni Eflingar, í hástert.

„Það er aðdáunarvert að sjá orku formannsins og trú hennar á að réttlætinu verði fullnægt. Hún má vera eins og hún er og ganga fram af sinni eigin eflingu í trú á betri kjör fyrir þá sem minna mega sín í þessu samfélagi sem við öll tilheyrum. En á sama tíma er það sorglegt að sjá hvernig atvinnurekendur og ráðamenn sjái ekki skýrar ennþá en það gæti gerst þegar lægðunum slotar. Megi listin hjálpa fleirum að sjá skýrar á vormánuðum.“