Fimm daga stæði fyrir einkaflugvél á Reykjavíkurflugvelli kostar minna en stæði fyrir bíl í bílakjallara í miðbænum. Þetta sýna útreikningar sem Isavia hefur staðfest. Þetta kemur fram í frétt Fréttablaðsins.
Í jósi þess fjölda einkaþota sem lenda á Reykjavíkurflugvelli nú í sumar tók Fréttablaðið til skoðunar þann kostnað sem hlýst af því að lenda einkaþotu á flugvellinum. Í útreikningum var notuð gjaldskrá Isavia sem gildir um flugvelli utan Keflavíkurflugvallar.
Sé Cessna Citation M2 vél tekin sem dæmi, einkaflugvél í minni kantinum, með farrými fyrir sjö farþega, kostar 35.485 krónur að leggja slíkri vél á Reykjavíkurflugvelli í fimm sólarhringa.
Miðað er þá við að flugvélin sé í hámarksþyngd þegar hún lendir og því um hámarksgjald fyrir slíka vél að ræða. Sé um stærri flugvél að ræða er kostnaðurinn hærri. Ef færri farþegar, minna eldsneyti eða minni farangur er í vélinni myndi það lækka kostnað við lendinguna og geymslu þar sem gjaldskrá Isavia reiknast aðallega út frá þyngd flugvélar og fjölda farþega.
Til samanburðar má nefna að ef bifreið er lagt í bílakjallaranum undir Hafnartorgi í miðborg Reykjavíkur er gjaldið 440 krónur fyrir hvern klukkutíma milli klukkan 8.00 og 20.00 en 210 krónur frá 20.00 til 8.00.
Ef miðað er við að bíllinn standi í bílakjallaranum í fimm sólarhringa kostar það 39.000 krónur.
Birkir Ingibjartsson, varaborgarfulltrúi Samfylkingarinnar, segir málið sýna hversu mikil tímaskekkja flugvöllurinn er. „Eigum við eitthvað að ræða hvílík tímaskekkja þessi flugvöllur í miðborg Reykjavíkur er? Þetta dekur við einkaflugvélar afhjúpar ansi margt en ekki síst algert virðingarleysi Ríkisins & ISAVIA fyrir þeim verðmætum sem í þessu svæði liggur!“ skrifar Birkir á twitter.
https://t.co/qhaYJh9yT5
— BIRKIR BORGARSON (@bingibjarts) July 27, 2022
Eigum við eitthvað að ræða hvílík tímaskekkja þessi flugvöllur í miðborg Reykjavíkur er?
Þetta dekur við einkaflugvélar afhjúpar ansi margt en ekki síst algert virðingarleysi Ríkisins & ISAVIA fyrir þeim verðmætum sem í þessu svæði liggur! 😤 #völlinnburt