Á fimm og hálfum mánuði, eða frá því í lok maí fram í byrjun nóvember, hefur vörukarfa ASÍ hækkað um 0,5%-2,6% í sjö verslunarkeðjum. Þetta kemur fram í tilkynningu sem ASÍ sendi frá sér í dag en í henni segir að vörukarfan endurspegli almenn matarinnkaup meðalheimilis.
Mest hækkaði vörukarfan í Nettó, um 2,6% og næst mest í Bónus, 2,4%. Minnst hækkaði vörukarfan í Hagkaup milli mælinga, eða um 0,5%. Í 6 tilfellum af 7 hækkaði vörukarfan um 1,5%-2,6%.
Verð hækkaði í flestum vöruflokkum en minnstu verðhækkanirnar voru í flokki grænmetis og ávaxta og kjötvara og lækkaði verð í þeim vöruflokkum í einhverjum tilfellum. Verðmælingar fóru fram vikurnar 18-25. maí og 2.- 9. nóvember 2020.
Vörukarfan hækkar um 2,6% í Nettó og 2,4% í Bónus
Mest hækkaði vörukarfan eins og áður segir í Nettó um 2,6%. Munar þar mestu um hækkun drykkjarvara 5,6% og hækkun á mjólkurvörum og ostum, 5,1%. Næst mest hækkaði vörukarfan í Bónus, 2,4% en þar hækkuðu grænmeti og ávextir mest eða um 6,8% og þá hækkuðu mjólkurvörur og ostar um 4,5%.
Minnst hækkaði vörukarfan í Hagkaup, 0,5% en þar lækkaði verð á kjötvöru um 1,8% milli mælinga. Sykur, súkkulaði og sælgæti lækkaði einnig lítillega í verði í Hagkaup en verð á brauði- og kornvörum stóð nánast í stað milli mælinga. Drykkjarvörur hækkuðu þó mikið í Hagkaup, eða um 6,2%.
Af lágvöruverðsverslununum Bónus, Krónunni og Nettó hækkaði verð minnst í Krónunni, um 1,5% samanborið við 2,4% verðhækkun á vörukörfunni í Bónus og 2,6% í Nettó. Ef litið er til annara verslana sem teljast ekki til lágvöruverðsverslana og eru ýmist með lengri opnunartíma eða eru staðsettar á fleiri stöðum á landinu má sjá að vörukarfan í Iceland hækkar mest eða um 2,1% samanborið við 1,8% hækkun á vörukörfunni í Kjörbúðinni og 1,7% í Krambúðinni.
Hér má sjá niðurstöðurnar í heild sinni.