Dýraníðingur aftur kominn á kreik: „Börnin eru lömuð af sorg“

Svo virðist sem dýraníðingur sé á ferð í Bústaðahverfi ef marka má færslu sem Atli Sævarsson setti inn í Facebook-hóp fyrir íbúa í hverfi 108 í Reykjavík í gærkvöldi.

„Dýra­níðingurinn í Heiðar­gerði er aftur farinn á kreik,“ segir Atli í færslunni en Fréttablaðið fjallaði um málið í gærkvöldi.

„Þann 15. júní í fyrra var eitrað fyrir kettinum okkar með þeim af­leiðingum að við þurftum að svæfa hana,“ segir Atli og bætir við að fjöl­skyldan sé að ganga í gegnum það sama aftur – nánast nákvæmlega ári síðar.

Segir Atli að svæfa hafi þurft heimilisköttinn Slaufu sem var „gríðarlega þjáð vegna eitrunar“.

„Börnin eru lömuð af sorg enn eina ferðina og enn eitt dýrið fær að upp­lifa þennan gríðar­lega kvala­fulla dauð­daga,“ segir Atli sem hvetur íbúa hverfisins til að hafa augun opin fyrir grun­sam­legum matar­leifum.

„Ef ein­hver hefur á­bendingar um hver gæti verið hér að verki þa yrði ég gríðar­lega þakk­látur að haft yfir sam­band við við mig.“