„Gangi spáin eftir verður þetta lægsti loftþrýstingur í vetur og þar með dýpsta lægðin,“ segir Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur á Facebook-síðu Bliku.
Veðrið hefur verið með eindæmum gott víða á landinu í vetur, þó sérstaklega suðvestanlands þar sem varla hefur snjóað. Í færslunni er bent á að nálæg háþrýstisvæði hafi stjórnað veðrinu hér frá því um 1. Mars en nú séu í uppsiglingu breytingar á lofthringrásinni og spáð örri dýpkun lægðar suður af landinu. Fer hún til norðurs skammt fyrir austan land.
„Kl. 18 á morgun spáir Evrópska reiknimiðstöðin lægðarmiðju við Borgarfjörð eystri og Héraðsflóa um 954 hPa. Við vorum ekki óvön svipuðum lægðum í fyrravetur, en gangi spáin eftir verður þetta lægsti loftþrýstingur í vetur og þar með dýpsta lægðin!“
Gangi þetta eftir má reikna með stórhríðarveðri, stormi og talsvert mikilli ofankomu, einkum á Vestfjörðum, en einnig norðanlands. „Frá því snemma í fyrramálið (miðvikudag) og alveg fram á föstudag. Mildara verður norðaustan- og austantil og snjóar hærra til fjalla.“
Samkvæmt hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands er gert ráð fyrir allhvassri norðanátt á morgun, en hvassviðri eða stormi um landið norðvestanvert síðdegis.
„Á morgun þarf því að gera ráð fyrir snörpum vindstrengjum við fjöll í flestum landshlutum, einkum um landið vestanvert. Einnig má búast við hríðarveðri nokkuð víða, sérílagi á fjallvegum, en úrkomulítið sunnanlands. Það væri hyggilegt fyrir ferðalanga að hafa veður morgundagsins í huga þegar ferðalög eru skipulögð. Eftir hagstæða tíð undanfarið, minnir veturinn á sig. Á Íslandi er mars flokkaður sem vetrarmánuður, enda sýna veðurmælingar að hann sker sig ekki frá hinum vetrarmánuðunum þremur (desember, janúar og febrúar).“