Dulin skilaboð Guðmundar Þ. Guðmundssonar fyrrum landsliðsþjálfara í handbolta á Facebook vekja athygli. Færslan sem Guðmundur birti stóð þó ekki lengi og var eytt. Þetta kemur fram á íþróttavef Fréttablaðsins.
Það er handboltasérfræðingurinn, Arnar Daði Arnarson sem fjallar um málið á Twitter. „Hvernig á maður að lesa í þessi orð sem Gummi Gumm lét frá sér tímabundið á Facebook síðu sína í gærkvöldi. PS. Hættum að tala um sameiginlega ákvörðun HSÍ og GÞG," skrifar Arnar.
Arnar er einn þeirra sem segir augljóst að Guðmundur hafi verið rekinn úr starfi frekar en að um sameiginlega ákvörðun hafi verið að ræða.
Á myndinni sem Guðmundur birti á Facebook síðu sinni er texti á þýsku en ef hann er þýddur þá hljómar hann svona. „Stærsta ástæða streitu er daglegt samband við hálfvita," birtist þessi færsla Guðmundar skömmu eftir tilkynningu um að hann væri hættur.
Guðmundur var búinn að stýra liðinu í fimm ár í þetta skiptið en þetta var í þriðja sinn sem hann stýrði karlalandsliðinu í handbolta.Íslenska liðið lék 64 leiki á þessum fimm árum og vann 33 þeirra eða 51 prósent allra leikja. Þremur leikjum lauk með jafntefli og 28 sinnum tapaði Ísland leiknum.
Hvernig á maður að lesa í þessi orð sem Gummi Gumm lét frá sér tímabundið á Facebook síðu sína í gærkvöldi.
— Arnar Daði (@arnardadi) February 22, 2023
PS. Hættum að tala um sameiginlega ákvörðun HSÍ og GÞG. pic.twitter.com/LGAWKE2zZS
Arnar er ítrekað spurður um hvað Gummi sagði undir færsluna en ekki virðast átta sig á að Gummi deildi myndinni af Einstein sem Arnar deilir.