Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk nokkur skondin mál inn á borð til sín í gærkvöldi og í nótt.
Rétt fyrir miðnætti var til dæmis tilkynnt um dularfullan mann sem var með vasaljós uppi á þaki einu í miðborginni. Sá sem tilkynnti manninn hefur væntanlega haldið að um innbrotsþjóf væri að ræða en svo var aldeilis ekki.
Í skeyti frá lögreglu kemur fram að maðurinn hafi viljað berja eldgosið í Geldingadölum augum. Þúsundir manna hafa streymt að gosstöðvunum undanfarna daga og hefur maðurinn eflaust ekki viljað vera eftirbátur þeirra.
Fleiri óvenjuleg mál komu inn á borð lögreglu. Þannig voru tveir góðkunningjar lögreglu stöðvaðir klukkan tvö í nótt á göngu í miðborginni. Athygli vakti að mennirnir voru með golfsett á rafmagnskerru með í för.
Sögðust mennirnir hafa verið að kaupa settið og greitt fyrir það með fíkniefnum. Þegar lögregla spurði þá frekar gátu þeir ekki nefnt neinn golfvöll og þá tekur lögregla fram að þeir séu þekktir fyrir margt annað en að spila golf. Lagði lögregla því hald á settið þar sem grunur leikur á að um þýfi hafi verið að ræða.
Um miðnætti óskaði maður í Grafarvogi eftir aðstoð en um var að ræða viðskiptavin veitingastaðar. Maðurinn sagðist hafa verið á salerni staðarins en þegar hann kom út voru allir starfsmenn farnir og húsið læst. Öryggiskerfi var í gangi og kom öryggisvörður einnig á vettvang.