Enar Þorsteinsson, oddviti Framsóknarflokksins, og Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og oddviti Samfylkingarinnar munu hittast á fundi seinna í dag. Fréttablaðið greinir frá þessu, og þar kemur að þeir muni þreifa á málefnum og kanna hvort grundvöllur er fyrir nýjum fundi í félagi með fleiri flokkum.
Þessi fundur Einars og Dags mun fara fram á leynistað.
Þó eru engar formlegar viðræður um meirihluta hafnar, en óformlegar viðræður eru nú í gangi. Einar sagði í viðtali við Fréttavakt Hringbrautar að hann hafi rætt við Hildi, Dag, Þórdísi Lóu og Kolbrúnu í dag. Þá segir hann líklegt að einhverjir dagar líði áður en meirihluti verði myndaður.
„Það þarf að myndast traust milli fólks. Ég ætla ekkert að drífa mig í þessu en það er þó gott að hafa ákveðinn tímaramma því borgarstjórn kemur saman í byrjun júní og þá er gott að vera búin að ljúka þessu,“ sagði Einar.