Í morgun greindu íslenskir miðlar frá frásögn Örnu Hrannar Ágústsdóttur, íbúa í Rimahverfi í Grafarvogi, sem sagði að um helgina hafi tvær dularfullar konur heimsótt unga dóttur sína og hagað sér á undarlegan hátt.
„Stelpan hringir sem sagt í mig og spyr hvort ég eigi von á þessum konum en ég auðvitað kannast ekki við þessa heimsokn. Þær biðja um að koma inn og á meðan hún er að tala við mig í símann labba þær út á pall hjá okkur og taka myndir segir stelpan okkar. Eins og þær væru að athuga aðgengi að húsinu að aftan.“
Hún segir að uppákoman hafi vægast sagt vakið óhug hjá fjölskyldunni vegna innbrotahrinu sem nú er í gangi. Arna hvetur fólk til þess að vera vakandi fyrir svonalöguðu sem og nærumhverfinu. Hægt er að lesa nánar um frásögn Örnu á vef Fréttablaðsins.
Þær Guðrún Ó. Axelsdóttir og Sólbjörg Laufey Vigfúsdóttur hafa nú stigið fram sem þessar tvær konur og segja málið byggt á missklningi. Þær hafi einfaldlega ætlað sér að heimsækja vinkonu sína sem á heima í næsta húsi, en farið húsavillt.
„Grafarvogurinn getur sofið vært,“ segir Guðrún í samtali við Fréttablaðið í dag. „Við erum ekki glæpakvendi sem ráðumst inn til barns.“
Þær hafi gengið inn á vitlaust hús og séð unga og þær hafi spurt hvort hún væri dóttir „Örlu“, en það er gælunafn sem þær nota yfir vinkonu sína. Stelpan hafi svaraði játandi, líklega haldið að verið væri að spyrja um „Örnu“, sem er nafn móður hennar.
Þær hafi því haldið að þær væru á réttum stað og stúlkan hleypt þeim inn í garð. Þar hafi þær þó áttað sig á því að þær væru ekki á réttum stað.
„Ég upplifði stelpuna ekki sem óttaslegna og ég bað hana innilega afsökunar á þessu,“ er haft eftir Guðrúnu sem telur sig og Laufeyju ekki hafa verið þarna nema í tæpa mínútu.
Hún segir þó að í kjölfarið hafi þær farið í rétt hús til vinkonu sinnar og skellihlegið af þessu öllu saman.