Dular­fullt manns­hvarf á Suður­landi: „Við höfum saknað hans í nokkur ár“

Lög­reglan á Suður­landi rann­sakar nú hvarf 63 ára Ís­lendings sem hefur verið saknað í meira en eitt og hálft ár. Lög­reglan lýsti eftir manninum, Sean Aloysius Marius Bradl­ey, þann 23. mars síðast­liðinn bæði hér á landi og hjá Inter­pol.

Ítar­lega er fjallað um málið í Frétta­blaðinu í dag.

Sean er fyrr­verandi fiðlu­leikari hjá Sin­fóníu­hljóm­sveit Ís­lands og er fjöl­skylda hans bú­sett í Bret­landi. Heimildir Frétta­blaðsins herma að vinir hans á Ís­landi hafi hvatt fjöl­skylduna til að láta lýsa eftir honum.

Málið er allt hið dular­fyllsta því fyrir hvarfið hafði hann verið í sam­skiptum við vini sína hér á landi á sam­fé­lags­miðlum. Tjáði hann þeim að hann hefði farið til Spánar með ís­lenskri vin­konu sinni.

„Það síðasta sem við heyrðum af honum, þá var hann á Spáni. Hann sagðist vera kominn í búdda-klaustur að stunda í­hugun, hann hefði það gott og við ættum að láta hann í friði,“ segir vin­kona hans í sam­tali við Frétta­blaðið og bætir við að þetta hafi komið þeim sem þekktu hann í opna skjöldu. „Við höfum saknað hans í nokkur ár,“ segir hún einnig.

Sean var flug­hræddur og forðaðist það mjög að stíga upp í flug­vél.

Oddur Árna­son, yfir­lög­reglu­þjónn hjá lög­reglunni á Suður­landi, segir lög­regluna ekki geta stað­fest að Sean hafi farið til Spánar. Hann átti bókað flug í til­tekna vél til Spánar og flug­sætið var notað en lög­reglan vill ekki stað­festa að það hafi verið hann sem notaði sætið. Þá hefur ekkert sést til hans á Spáni.

Oddur segir málið vera skrýtið í heild sinni.

„Hann hafði verið í sam­bandi við ein­stak­linga hér heima og þetta virðist hafa verið mikil skyndi­á­kvörðun að fara, ef hann hefur farið. Mér finnst málið bara allt skrýtið. Ekkert þetta eitt­hvað um­fram annað,“ segir Oddur.

Nánar er fjallað um málið á vef Frétta­blaðsins.