Mistök uðru til þess að læknir frá Palestínu sem lést árið 2011 var skrifaður fyrir tilvísun á blóðrannsókn frá fyrirtækinu Greenfit sem sérhæfir sig í heilsufarsmælingum.
Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag en Greenfit er heilsubætandi fyrirtæki sem hefur það að leiðarljósi að aðstoða fólk við að bæta heilsuna á varanlegan hátt.
„Við komum alveg af fjöllum þegar við sáum ásakanir þessa heimilislæknis sem sendi þessa athugasemd inn og við brugðumst skjótt við og röktum málið,“ segir Lukka Pálsdóttir, annar af tveimur eigendum Greenfit í samtali við Morgunblaðið.
„Það hafa aldrei verið gerðar tilvísanir frá Greenfit í nafni nokkurra annarra en okkar og við erum bara sprelllifandi,“ segir Lukka.
Að hennar sögn er það Sameind, blóðrannsóknafyrirtækið sem framkvæmir blóðmælingar fyrir Greenfit. Að því sem hún best veit sendi fyrirtækið réttar upplýsingar um blóðrannsóknina í heilsugátt spítalans.
Að öllum líkindum hefur kóði, sem geymir upplýsingar um hvern lækni verið klipptur í sundur og þannig komið fram gamalt læknanúmer hjá látnum lækni. Í Morgunblaðinu segir Lukka að það hefði verið eðlilegt að hafa samband við þau en spítalinn er spítalinn sé búinn að biðjast afsökunar á mistökunum og sé jafnframt búinn að tilkynna landlækni hvernig málinu lauk.
Hægt er að lesa meira um þetta dularfulla mál í Morgunblaðinu í dag.