Dularfullir hlutir fóru að gerast eftir að Glúmur talaði við vinkonu sína í gærkvöldi

Glúmur Baldvinsson, stjórnmálafræðingur og stjórnmálaþátttakandi, segir að óvenjulegir – jafnvel dularfullir – hlutir hafi gerst eftir að hann spjallaði við vinkonu sína í síma í gærkvöldi.

„Átti símspjall við vinkonu mína í gærkveldi og ræddum við um allt milli himins og jarðar. En aðallega þó einsog gengur um ofsaveður, ofsafengið kynlíf og hraðskreiða bíla. Bara þetta venjulega alþýðuspjall sem vart er í frásögur færandi,“ segir Glúmur á Facebook-síðu sinni og lýsir því svo hvað gerðist.

„Ef ekki væri fyrir þá staðreynd að eftir að ég lagði símtólið á spruttu upp á FB síðu minni endalausar tilkynningar frá veðurstofum, kynlífssíðum og sölumönnum Porsche, Ferrari og Lamborghini osfrv.,“ segir hann og heldur áfram:

„Og þá veltir maður óhjákvæmilega fyrir sér hvort Stóra Alheimstölvan hleri nú líka símtöl? Ég vissi að allar aðgerðir okkar á netinu eru undir smásjá og móniteraðar. En símtöl? Er það það nýjasta nýtt? Scary shit.“

Vinir Glúms sem leggja orð í belg virðast hafa lent í því sama, sumir að minnsta kosti. Einn segir til dæmis:

„Ég og dóttir mín vorum að ræða um hvernig er best að smyrja hlaupabretti um daginn. Sama kvöld fer ég á YouTube og fyrsta sem blasti við mér var myndband með titlinum, ,,How to lubricate your treadmill" hehehe, bara ágætt myndband! Stóri bróðir fylgist með í gegnum öppin í símunum okkar og í snjallsjónvörpunum, það er staðreynd! En who cares“