Dularfullir atburðir í Sandgerði: Klukkan hafði ekki slegið í mörg ár en þá kom skjálftinn í morgun

Jarðskjálftarnir sem urðu á suðvesturhorni landsins í morgun fundust víða, meðal annars í Sandgerði þar sem óvæntir atburðir áttu sér stað á að minnsta kosti einu heimili.

Á samfélagsmiðlinum Reddit birtist skemmtilegt myndband sem fullyrt er að hafi verið tekið í Sandgerði í morgun. Þar segir ungur einstaklingur frá því að móðir hans hafi sent honum umrætt myndband í morgun.

Á myndbandinu má sjá stóra og mikla gamaldags klukku. Konan í myndbandinu segir að klukkan hafi ekki slegið í mörg ár en það hafi heldur betur breyst eftir að skjálftarnir riðu yfir. Drungalegir tónar klukkunnar heyrast svo í myndbandinu.

Í athugasemdum undir spyr einn hvort um sé að ræða dómsdagsklukkuna og annar spyr hvort hún sé nokkuð að telja niður.

Sjón er sögu ríkari en myndbandið má sjá hér að neðan:

Mamma mín sendi mér þetta eftir jarðskjálftan (Sandgerði) from r/Iceland