Skipverji sem fannst látinn í sjónum norðan Sæbrautar þann 26. janúar síðastliðinn féll útbyrðis úr báti sínum og drukknaði. Rannsóknarnefnd samgönguslysa hefur skilað skýrslu um slysið en Fréttablaðið greinir frá.
Báturinn, 4,7 brúttótonna trefjaplastbátur, fannst við Engey að morgni 26. janúar og fannst skipverjinn látinn síðar sama dag við Sólfarið við Sæbraut.
Báturinn fór frá bryggju í Reykjavíkurhöfn að kvöldi 25. janúar og segir í skýrslu rannsóknarnefndar samgönguslysa að skipverjinn hafi ekki tilkynnt brottför til Vaktstöðvar siglinga. Þá kom hann ekki inn í ferilvöktun hjá vaktstöð siglinga þar sem ekki var kveikt á sjálfvirkum staðsetningarbúnaði bátsins.
Við krufningu kom í ljós að dánarorsök skipverjans hafi verið drukknun. Þá leiddi krufningin einnig í ljós að hann hafi verið undir áhrifum. Tekið er fram í lok skýrslunnar að nefndin álykti ekki í málinu.